5. sæti yfir afleiki vinstristjórnar: Icesave 1

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vandræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­málum, mak­ríl­deilu­málum, Evr­ópu­málum, kjara­samn­inga­málum og alls kyns öðrum málum hafa dregið athygl­ina frá for­tíð­inni.

Síðasta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri-hreyf­ing­unni-grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu. Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast með þeim verstu sem íslensk stjórn­völd hafa nokkru sinni tekið. Kjarninn gerði topp fimm lista yfir þær helstu.

5. Icesave 1
„Ég var nú eig­in­lega bara orð­inn leiður á því að hafa þetta hang­andi yfir mér,“ sagði Svavar Gestsson í við­tali við Morg­un­blaðið 6. júní 2009. Hann hafði þá stýrt samn­inga­nefnd Íslands vegna Icesave-reikn­ing­anna sem náði sam­komu­lagi sem í dag­legu tali er aldrei kallað annað en Icesave 1. Þremur dögum áður hafði Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, sagt Alþingi að ekki stæði til að ganga frá „ein­hverju sam­komu­lagi á morgun eða ein­hverja næstu daga“.
Skemmst er frá því að segja að allt varð vit­laust í sam­fé­lag­inu vegna þessa samn­ings. Bæði þóttu kjörin sem samið var um þess eðlis að Ísland myndi aldrei ráða við þau og stór hluti þjóð­ar­innar var líka þeirrar skoð­unar að ríkið ætti ekk­ert að axla þessar einka­skuldir Lands­bank­ans. Eftir margra mán­aða hark og breyt­ingar voru lögin loks sam­þykkt á Alþingi 30. des­em­ber 2009. Forseti Íslands synj­aði þeim stað­fest­ingar nokkrum dögum síðar og málið fór þaðan í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í henni sögðu 93,2 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði nei við samn­ingnum. Já sögðu 1,8 pró­sent. Það er lík­ast til fátt sem klauf þjóð­ina frá þing­inu sínu jafn skarpt og Icesave 1. Og í þann klofn­ing glittir enn í dag.

Smelltu hér til að lesa topp fimm list­ann í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár