Lagðar til breytingar á hlutafé MP banka

Hlutafé MP banka verður fært niður með svo­kall­aðri öfugri jöfnun á aðal­fundi bank­ans, sem er fyr­ir­hug­aður 11. apríl næst­kom­andi, sam­kvæmt til­lögum sem sendar voru til hlut­hafa á síð­ustu dögum. Sá sem átti áður fimm hluti myndi eftir breyt­ingu eiga einn, þrátt fyrir að virði eignar hans sé enn það sama. Verð­gildi hvers hlutar verður ein­fald­lega fimm­falt eftir breyt­ing­una.

Ætluðu að sækja sér tvo millj­arða

Á hlut­hafa­fundi sem MP banki hélt í nóv­em­ber 2012 var sam­þykkt heim­ild til að auka hlutafé bank­ans um tvo millj­arða króna. Í til­kynn­ingu sagði að þetta ætti að gera til að styðja við útlána­vöxt bank­ans og vera „mik­il­vægur liður og stórt skref í átt að skrán­ingu bank­ans á verð­bréfa­markað árið 2014“. Í kjöl­farið sagði Skúli Mogensen, sem þá var stærsti ein­staki eig­andi MP banka, að hann ætl­aði að taka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og verja 17,3 pró­sent hlut sinn í bank­anum.

Þrátt fyrir þessa opin­skáu til­kynn­ingu um ætl­aða hluta­fjár­aukn­ingu hefur hún ekki gengið eftir. Þ.e. hvorki hefur tek­ist að safna þessum tveimur millj­örðum króna og núver­andi eig­endur hafa ekki viljað leggja fram nýtt eigið fé ef undan er skilin 300 millj­óna króna hluta­fjár­aukn­ing sem átti sér stað í fyrra­sumar. Síðan að upp­runa­lega til­kynn­ingin var gefin út hefur Skúli skilið við fyrrum eig­in­konu sína, Margréti Ásgeirs­dóttur. Sem hluti af upp­gjöri þeirra á milli við skiln­að­inn eign­að­ist Margrét 8,2 pró­sent hlut í MP banka. Skúli á nú 9,91 pró­sent og er ekki lengur stærsti ein­staki hlut­hafi MP banka.

Opnað á sveigj­an­leika

Í hluta­fé­laga­lögum er skýrt að greiða verður krónu fyrir krónu í hluta­fjár­aukn­ingu. MP banki hefur lent í tölu­verðu basli með eignir sem bank­inn keypti frá gamla MP banka á sínum tíma. Þurft hefur að gjald­færa stórar upp­hæðir vegna þess að þær reynd­ust ekki jafn verð­miklar og reiknað var með. Það hefur því reynst erfitt að sækja nýtt hlutafé á geng­inu einn eða hærra auk þess sem núver­andi hlut­hafar eru treg­ari til að leggja meira fé inn eftir að eign þeirra hefur rýrnað vegna þess­arra gjald­færslna.

Að sögn Sigurðar Atla eiga þær breyt­ingar sem nú verður ráð­ist í að opna á þann sveigj­an­leika að fara í hluta­fjár­aukn­ingu á nýju gengi. „Ef að það sem þarf er annað gengi, þá á stjórn þennan mögu­leika. Það eru margir sam­verk­andi þættir sem valda því að hluta­féð hefur ekki verið aukið fram til þessa. Fyrir það fyrsta var farið af stað í þessa aukn­ingu með það fyrir augum að núver­andi hlut­hafar ætl­uðu að skrá sig fyrir helm­ingnum af henni. Um millj­arði króna. Svo á ein­hverjum tíma­puntki kemur í ljós að þau plön eru breytt og það hefur áhrif á aðra áhuga­sama. Félagið hefði ekki farið af stað með þessa hluta­fjár­aukn­ingu fyrir opnum tjöldum nema að það hefði legið fyrir þessi áhugi núver­andi hlut­hafa. En aðstæður manna geta breyst.“

Einblína á kjarna­starf­semi

Tölu­verðar breyt­ingar hafa átt sér stað hjá MP banka að und­an­förnu. Bankinn seldi hlut sinn í GAMMA, féll frá kaup­samn­ingi á meiri­hluta í Íslenskum verð­bréfum og seldi eigna­leigu­starf­sem­ina Lykill, sem er rétt tveggja ára, til Lýsingar. Aðspurður um hvort til standi að selja fleiri eignir segir Sigurður Atli svo ekki endi­lega vera. „Það hefur verið stefna okkar frá því seint á árinu 2011 að vera ekki inná smá­sölu­banka­mark­aði. Fókusinn hefur verið á fyr­ir­tæki og það sem kallað er á banka­máli athafna­sama ein­stak­linga. Við erum að fylgja þeim fókus enn betur en við höfum gert til þessa. Við erum fyrst og fremst að selja eignir sem tengj­ast ekki alveg okkar kjarna­starf­semi, eins og hlut­inn í GAMMA og eigna­leigu­starf­sem­ina okkar. Að öðru leyti höfum við verið að skoða fjár­mögnun utan efna­hags á sumum eignum en það er ekki búið að ganga frá neinu þar.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans snýst sú leið um að fá sjóði í stýr­ingu sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækja til að koma að fjár­mögnun á völdum eignum MP banka.

MP banki mun birta upp­lýs­ingar um upp­gjör árs­ins 2013 á morgun, fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár