Pólitísk heimsmynd í ýktum sagnaheimi

Eftir sjö kvik­myndir í fullri lengd eru bæði stíl­brögð og þemu leik­stjór­ans Wes Anderson orðin ansi skýr. Í raun og veru eru þau svo skýr að það er bæði auð­velt og vin­sælt að gera skop­stæl­ingar og eft­irap­anir af kvik­mynda­heimi hans. Banda­ríska heima­síðan Slate gerði nýlega „Wes Anderson-bingó-spjöld“, í hvert sinn sem klisju­kennd atriði birt­ust á skjánum átti að fylla út reiti á bingóspjald­inu, og nýlega gerði Saturday Night Live innslag sem kann­aði hvernig hryll­ings­mynd eftir Wes Anderson gæti litið út. Þegar ein­ungis er litið á þá hluti sem Anderson gerir eins í mynd eftir mynd er auð­velt að missa af þeim breyt­ingum sem eiga sér stað frá einni kvik­mynd til ann­arrar og þeirri þróun sem hefur átt sér stað í myndum hans.

Fyrri myndir Anderson hafa allar endað á ein­hvers konar upp­gjöri. Fjöl­skyldur koma saman – gömul, slitin tengsl lag­ast og ný skap­ast. Hlut­irnir eru ekki alltaf full­komnir, en það er greini­legt að þeir munu batna. Það er því ákveðið sjokk að upp­lifa nýj­ustu mynd And­er­sons, The Grand Budapest Hotel, sem er bæði fyrsta mynd hans þar sem ein­hvers konar póli­tísk heims­mynd brýst inn í ýktan sagna­heim­inn og fyrsta mynd hans sem endar á tóni sem vísar till auk­innar eyði­legg­ingar og nið­ur­rifs í stað auk­innar sam­heldni eða upp­bygg­ingar.

Þetta er örstutt útgáfa af umfjöllun um Wes Anderson og The Grand Budapest Hotel. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár