Viðskiptavild upp á 33 milljarða króna horfin

Sala íslenska rík­is­ins á hlutafé sínu í Símanum sum­arið 2005 mun lík­lega fara í sögu­bæk­urnar sem ein bestu við­skipti sem fram­kvæmd hafa verið á Íslandi. Exista og við­skipta­legir með­reið­ar­sveinar þess áður stór­tæka fjár­fest­ing­ar­fé­lags, sem síðar maga­lenti stór­kost­lega, keyptu Símann undir hatti félags sem fékk nafnið Skipti á upp­hæð sem í dag myndi vera um 140 millj­arðar króna. Kaupin voru vit­an­lega fjár­mögnuð með lánum og skuld­unum sem stofnað var til vegna þeirra var dembt aftur inn í rekst­ur­inn með því að sam­eina Skipti og Símann í svoköll­uðum öfugum sam­runa. Vegna þess háa verð­miða sem greiddur var fyrir Símann varð við­skipta­vild Skipta mjög há. Ofan af henni hefur þurft að vinda á und­an­förnum árum eftir að raun­veru­leik­inn tók við af sýnd­ar­veru­leika fyr­ir­hrunsár­anna. Alls hefur við­skipta­vild Skipta hefur verið færð niður um 33 millj­arða króna alls frá árinu 2008.

Lesa má allt um málið í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár