Mesti hagnaður einkafjárfesta eftir bankahrun

Haga­melur ehf., félag í eigu fjár­fest­anna Árna Hauks­sonar, Hall­björns Karls­sonar og Sigur­björns Þor­kels­sonar, seldi á mánu­dag 6,6 pró­senta hlut í smá­söluris­anum Högum. Með söl­unni inn­leystu þeir um 2,3 millj­arða króna hreinan hagnað á fjár­fest­ingu sinni í félag­inu, en tæp þrjú ár eru síðan þeir lögðu út í hana. Haga­melur á enn tæp­lega 1,6 pró­senta hlut. Sá hlutur er met­inn á tæp­lega 800 millj­ónir króna, sem er svipuð upp­hæð og þeir fjár­festu upp­runa­lega í Högum.

Um er að ræða mesta hagnað sem einka­fjár­festir hefur inn­leyst frá hruni vegna hluta­bréfa­við­skipta. Fyrri stórar hagn­að­ar­sölur, til dæmis með bréf í Icelandair, hafa flestar verið þannig að Fram­taks­sjóður Íslands, að mestu í eigu líf­eyr­is­sjóða, hefur verið að selja líf­eyr­is­sjóð­unum sem eiga sjóð­inn. Þannig hafa pen­ingar verið færðir úr einum vasa í annan.
Það kemur vænt­an­lega engum á óvart að það voru að mestu líf­eyr­is­sjóðir sem keyptu hlut Hagamels í Högum. Mest keypti Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, en hann borg­aði um 1,7 millj­arða króna fyrir um 3,4 pró­senta hlut.

Þetta er örstutt útgáfa af ítar­legri umfjöllun um sölu á bréfum í Högum. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár