Nýr forstjóri Skipta ráðinn eftir valdabaráttu

Orri Hauksson var í gær ráð­inn for­stjóri Skipta. Hann tekur við starfi Steins Loga Björns­sonar sem var rek­inn 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Kjarninn greindi frá því nokkrum dögum síðar mikil valda­bar­átta færi fram innan Skipta um hver ætti að leiða þetta stærsta fjar­skipta­fé­lag lands­ins. Baráttan snérist ekki um rekstur þeirra fyr­ir­tækja sem Skipti á. Hún snérist heldur ekki um fram­tíð­ar­stefnu­mótun þeirra. Baráttan hefur fyrst og síð­ast snú­ist um per­sónur. Stjórn­ar­menn sem sitja í stjórn­inni fyrir hönd líf­eyr­is­sjóða eru sagðir hafa viljað koma „sínum manni“. Sá maður var Orri Hauksson.

Hér að neðan birt­ist brot úr frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið sem birt­ist fyrst 19. sept­em­ber, fyrir mán­uði síðan.

Erfiðir tímar eftir hrun

Hlutverk Steins Loga Björns­sonar sem for­stjóra Skipta var að taka til í rekstr­inum, auka fram­legð Skipta og und­ir­búa félagið undir fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu, sem var óum­flýj­an­leg. Skipti höfðu þá tapað 33 millj­örðum króna á árunum 2008 til 2012.

Hún hófst form­lega í jan­úar síð­ast­liðnum og í apríl lágu til­lög­urnar fyrir. Þær gerðu ráð fyrir að eig­endur skulda­bréfa sem Skipti höfðu gefið út, en gátu ekki borgað af, skiptu á þeim og hluta­bréfum, að Arion banki breytti hluta lána sinna í hlutafé og að félagið yrði end­ur­fjár­magnað. Klakki gaf á sama tíma frá sér allt hlutafé.

Eftir end­ur­skipu­lagn­ing­una var Arion banki stærsti ein­staki eig­andi Skipta en líf­eyr­is­sjóðir, sem höfðu verið dug­legir að kaupa upp skulda­bréf Skipta fyrir hrun, voru stærstir á meðal ann­arra eig­enda. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og Gildi voru þar stærstir með sam­tals um 30 pró­sent hlut.

Reynt að ráða Orra í sumar

Þegar ljóst var að nýir eig­endur voru komnir að félag­inu þurfti að halda hlut­hafa­fund og velja nýja stjórn sem end­ur­spegl­aði nýtt eign­ar­hald. Hann var haldin 2. júlí síð­ast­liðin og hófst á ávarpi þáver­andi stjórn­ar­for­manns, Bene­dikts Sveins­sonar, sem sat fyrir hönd Arion banka. Á þeim tima gætti nokk­urs óróa í hinum nýja hlut­hafa­hópi Skipta vegna þrýst­ings frá ýmsum í stjórn Skipta við að koma Orra Hauks­syni, fram­kvæmda­stjóra Samtaka Iðn­að­ar­ins, að sem for­stjóra félags­ins. Helgi Magn­ús­son réð Orra í þá vinnu. Þeim til­raunum var hrundið.

Í ávarpi sínu gagn­rýndi Benedikt þessar til­raunir til að bola Steini Loga burt án sýni­legrar ástæðu og án efn­is­legra raka. Hann gagn­rýndi einnig stig­vax­andi umsvif líf­eyr­is­sjóð­anna í íslensku við­skipta­lífi.Samkvæmt heim­ildum Kjarnans setti Benedikt ákveðin skil­yrði, sem snéru að full­trúum líf­eyr­is­sjóð­anna í stjórn Skipta, fyrir því að sitja áfram í stjórn­inni. Að þeim varð ekki og úr varð að Benedikt bauð sig ekki fram til áfram­hald­andi setu.

Steinn Logi rek­inn

Í sept­em­ber dró svo til tíð­inda. Steini Loga var sendur tölvu­póstur á fimmtu­degi, þann 12. Sept­em­ber, og hann boð­aður á fund stjórn­ar­manna á föstu­degi. Þar hitti hann Sigríði Hrólfs­dóttur, nýjan for­mann stjórnar Skipta, og Ingimund Sig­ur­páls­son, vara­for­mann stjórnar, og hann beð­inn um að sam­þykkja starfs­lok. Á manna­máli þýðir það ein­fald­lega að hann var rek­inn.

Nú var svo komið að líf­eyr­is­sjóð­irnir voru komnir með meiri­hluta í stjórn og gátu því ráðið mál­inu. Ákvörð­unin var samt sem áður ein­róma en með því skil­yrði að starfið yrði aug­lýst. Það var gert á mánu­dag­inn 16. sept­em­ber.

Við­mæl­endur Kjarnans sem studdu brott­rekst­ur­inn segja að nýir eig­endur hafi ein­fald­lega ekki talið Stein Loga vera réttu týpuna til að leiða Skipti inn í fram­tíð­ina. Framundan sé mikil sam­keppni á mjög hörðum sam­keppn­is­mark­aði og skrán­ing félags­ins á markað. Önnur mann­gerð stjórn­anda myndi henta betur í það hlut­verk. Þessi skoðun var sér­stak­lega ráð­andi hjá full­trúum líf­eyr­is­sjóð­anna í stjórn Skipta: Helga Magn­ús­syni, Heiðrúnu Jóns­dóttur og Stefáni Árna Auð­ólfs­syni. Þau þrjú eru með meiri­hluta í fimm manna stjórn. Þeir sem voru ákvörð­un­inni mót­fallnir segja á hinn bóg­inn að brott­rekst­ur­inn sé ein­falt, gam­al­dags valda­tafl.

Það sem gerði brott­rekstur Steins Loga helst sér­kenni­legan í huga margra er að undir hans stjórn hafa Skipti tekið stakka­skiptum. Eftir að hann varð for­stjóri hefur tek­ist að hag­ræða mjög í rekstr­inum, ljúka ýmsum sam­keppn­is­málum sem sam­steypan stóð frammi fyrir og klára fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu hennar. Þar skipti mestu máli að sann­færa skulda­bréfa­eig­endur um að breyta bréfum sínum í ný hluta­bréf. Mark­að­ur­inn virð­ist líka hafa mikla trú á Skiptum. Félagið seldi skulda­bréf fyrir um átta millj­arða króna í sumar og var umfram­eft­ir­spurn tæp­lega 50 pró­sent. Þó verður að taka það með í dæmið að fjár­fest­inga­mögu­leikar á Íslandi eru ekk­ert sér­lega margir. Afkoma Skipta eftir skatta, fjár­magnsliði og afskriftir var jákvæð um 466 millj­ónir króna á fyrri hluta þessa árs. Til sam­an­burðar tap­aði félagið 2.562 millj­ónum króna á sama tíma­bili árið áður. Það eru því bjart­ari tímar framundan hjá Skiptum.

Áhyggjur af líf­eyr­is­sjóðum

Margir í við­skipta­líf­inu eru auk þess hugsi yfir þeim miklu ítökum sem líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa yfir atvinnu­líf­inu. Þeim finnst bar­áttan sem átt hefur stað stað innan Skipta end­ur­spegla þau vanda­mál sem eru uppi ágæt­lega.

Aukin umsvif og áhrif líf­eyr­is­sjóð­anna í atvinnu­líf­inu má helst rekja til tveggja hluta. Annars vegar áttu þeir mikið magn skulda­bréfa á fyr­ir­tæki sem fóru á haus­inn og gátu því ekki greitt þau til­baka. Líf­eyr­is­sjóð­irnir breyttu því skuld­unum í hlutafé í þeirri von að end­ur­heimta eitt­hvað að eignum sínum. Hin ástæðan eru gjadl­eyr­is­höft. Ný fjár­fest­inga­þörf líf­eyr­is­sjóð­anna er allt að 130 millj­arðar króna á ári og höftin meina þeim að fjár­festa erlendis.

Þessi staða gerir það að verkum að því lengur sem höftin eru til staðar því meira munu líf­eyr­is­sjóðir eign­ast í íslensku við­skipta­lífi. Eign­ar­haldið verður ann­að­hvort beint í nafni sjóð­anna eða óbeint í gegnum ýmsa fjár­fest­inga­sjóði. Ef sjóð­irnir fara að nálg­ast hámark þess sem þeir mega eiga í ákveðnum teg­undum fjár­fest­inga sam­kvæmt lögum virð­ist sem lög­gjaf­inn hafi um lítið annað að velja en að rýmka þær heim­ildir enn frekar. Þetta sást ágæt­lega í upp­hafi þessa árs þegar heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa í óskráðum bréfum var aukið úr 20 pró­sent af heild­ar­eignum þeirra í 25 pró­sent.

Í ljósi þeirra áhrifa og valda sem munu safn­ast á hendur líf­eyr­is­sjóð­anna vegna þess­ara aðstæðna velta margir fyrir sér hvort breyta þurfi ann­ars­vegar fyr­ir­komu­lag­inu á því hvernig er valið í stjórn sjóð­anna og hins vegar að búa til nýtt fyr­ir­komu­lag um hvernig sjóð­irnir skipa full­trúa í stjórnir þeirra fyr­ir­tækja sem þeir eign­ast. Valdið geti nefni­lega þjapp­ast fljótt saman við þær aðstæður sem nú ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár