Ísland: land banka og lífeyrissjóða

Þegar skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis var birt í apríl 2010 sendu höf­undar hennar skýr skila­boð um það sem væri að í íslensku atvinnu­lífi. Þar kom meðal ann­ars fram að gagn­sæi, góðir stjórn­ar­hættir og raun­veru­leg sam­fé­lags­leg ábyrgð fyr­ir­tækja væru þættir sem var veru­lega ábóta­vant fyrir hrun. Við­skipta­ráð, hags­muna­sam­tök þess atvinnu­lífs sem verið var að gagn­rýna hvað harð­ast, tók meira að segja undir þessa nið­ur­stöðu. Og allir lof­uðu bot og betrun. Lítið virð­ist hafa orðið um efndir á þeim lof­orðum.

Hlutfall form­legs eign­ar­halds banka og skila­nefnda á fyr­ir­tækjum hefur vissu­lega lækkað skarpt á und­an­förnum árum, en það er samt sem áður enn mjög hátt. Bankar eiga níu pró­sent af hlutafé 120 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins og skila­nefndir fimm pró­sent.

Í skoðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á ráð­andi stöðu banka í stærri fyr­ir­tækjum, en með því er átt við beint eign­ar­hald að við­bættum fyr­ir­tækjum sem eru með nei­kvætt virði hluta­fjár, versnar þessi staða enn. Bankar ráða yfir 25 pró­sent 120 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins sam­kvæmt nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins. Þegar ein­vörð­ungu er horft til inn­lends þjón­ustu­geira eru tögl og haldir banka enn meiri. Þeir ráða yfir 39 pró­sent fyr­ir­tækja innan hans.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir orðnir allt of fyr­ir­ferða­miklir

Í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er líka stað­fest sú til­finn­ing sem margir hafa; íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru orðnir óþægi­lega stórir eig­endur í íslensku atvinnu­lífi. Beina eign­ar­að­ild sjóð­anna er hægt að sjá í opin­berum skjölum. Óbein eign þeirra, sem er til að mynda í gegnum allskyns fjár­fest­inga- eða skulda­bréfa­sjóði sem reknir eru af eign­ar­stýr­inga­fyr­ir­tækjum banka eða öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum, eru ógagn­særri. Á hlut­haf­alistum stórra íslenskra fyr­ir­tækja eru sjóðir í eigu fyr­ir­tækja eins og Stefnis (sem Arion banki á), Lands­bréfa (sem Lands­bank­inn á), Íslands­sjóða (í eigu Íslands­banka), Júpiter, Auðar Capital, MP Banka og ýmissa ann­arra safn­reikn­inga á meðal 20 stærstu hlut­hafa flestra skráðra fyr­ir­tækja.

Í við­tali við Kjarnann í dag, sem birt er ann­ars staðar í þess­ari útgáfu, segir Hregg­viður Jónsson, for maður Við­skipta ráðs, að líf­eyr­is­sjóðir eigi allt að helm­ing skráðra hluta­bréfa á Íslandi, bæði beint og óbeint í gegnum hlut­deildar eign í sjóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár