Leyniskjöl birt: Rannsókn á Sterling lokið

Rannsókn á því hvort FL Group hafi í raun greitt þrjá af þeim fjórum millj­örðum króna sem Fons, félag í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar, not­aði til að greiða fyrir danska flug­fé­lagið Sterling í mars 2005 er lokið hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Nið­ur­stöður hennar liggja nú hjá sak­sókn­ara innan emb­ætt­is­ins, sem mun taka ákvörðun um hvort ákært verður eða ekki. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verður sú ákvörðun tekin innan mán­aðar.
Málið hefur verið til rann­sóknar frá því haustið 2008 hjá ýmsum emb­ættum. Við­skipti FL Group, Fons og Sunds ehf. sem áttu sér stað með eign­ar­hluti í Sterling og öðrum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á árunum 2005 til 2008 eru ein þekkt­ustu meintu sýnd­ar­við­skipti sem fram­kvæmd voru á árunum fyrir hrun. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir meðal ann­ars að þau séu „ein­hver umdeild­ustu við­skipti Hannesar [Smára­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra og stjórnar­for­manns FL Group] og raunar alls þessa tíma­bils“.

Efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hóf að rann­saka þessi við­skipti árið 2008 að eigin frum­kvæði. Undir voru grun­semdir um meint auðg­un­ar­brot og brot á ákvæðum hluta­fé­laga­laga um bann við lán­veit­ingum á borð við þá sem FL Group var grunað um að hafa veitt Fons.
Hinn 11. nóv­em­ber 2008 gerðu starfs­menn skatt­rann­sóknar­stjóra síðan ítar­lega hús­leit í höf­uð­stöðvum FL Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoðir. Þar var lagt hald á ýmiss konar bók­halds­gögn og skjöl sem tengd­ust ætl­uðum sýnd­ar­við­skiptum með eign­ar­hluti í Sterling og öðrum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum og ara­grúi tölvu­póst­sam­skipta afrit­aður.
Hluti þess­ara gagna var sendur áfram til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í lok árs 2009. Um er að ræða hund­ruð blað­síðna af trún­að­ar­gögnum.

Þau má lesa í umfjöllun nýj­ustu útgáfu Kjarnans um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár