Kröfu FME hafnað – skýrslan birt í þágu almannahagsmuna

Í fyrstu útgáfu Kjarnans, 22. ágúst sl., fjall­aði Ægir Þór Eysteins­son blaða­maður ítar­lega um mál­efni Spari­sjóðs­ins í Keflavík, SpKef, og skýrslu sem PWC vann fyrir Fjár­mála­eft­ir­litið. Skýrsl­unni hefur hingað til verið haldið leyndri, þrátt fyrir að SpKef sé gjald­þrota og Lands­bank­inn hafi yfir­tekið eft­ir­stöðvar sjóðs­ins. Efn­is­at­riði skýrsl­unnar voru rakin í frétta­skýr­ingu og skýrslan í heild sinni birt á vef Kjarnans. Útgáfan er aðgengi­leg hér á vefnum, www.kjarninn.is, í PDF-formi og í App-inu okkar í App Store fyrir iPhone og iPad.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) gerði kröfu um að skýrslan yrði tekin úr birt­ingu vegna upp­lýs­inga sem finna má í skýrsl­unni sem eft­ir­litið telur að eigi ekki erindi við almenn­ing. Í beiðni FME hefur eft­ir­litið m.a. vitnað til laga um banka­leynd. Auk þess hefur FME gefið í skyn að birt­ing skýrsl­unnar gæti varðað við almenn hegn­ing­ar­lög.

Þessu er rit­stjórn Kjarnans ósam­mála og telur alvar­legt að eft­ir­lits­stofnun, sem starfar í þágu almenn­ings, skuli gefa það í skyn að fjöl­mið­ill sé að ger­ast sekur um brot á hegn­ing­ar­lögum með því að birta skýrslu um starf­semi SpKef. Ekki síst í ljósi þess hversu skelf­ingar afleið­ingar fall spari­sjóðs­ins hafði fyrir rík­is­sjóð og íbúa á Suð­ur­nesjum. Samtals þurfti að leggja fram 26 millj­arða króna úr rík­is­sjóði vegna falls sjóðs­ins og stór hópur fólks­ins á Suð­ur­nesjum missti ævisparnað sinn.

Að auki telur rit­stjórn Kjarnans frá­leitt að birt­ing skýrsl­unnar sem slík feli í sér lög­brot. FME hefur áður reynt að hindra blaða­menn í því að fjalla um fallin fjár­mála­fyr­ir­tæki og starf­semi þeirra, en án árang­urs og án þess að dóm­stólar hafi stað­fest að laga­túlkun lög­manna eft­ir­lits­ins, þegar kemur að birt­ingu upp­lýs­inga, sé rétt.

Kjarninn mun ekki fjar­lægja skýrsl­una um starf­semi sjóðs­ins af vefnum, en mál­inu verður fylgt eftir í næstu útgáfu Kjarnans, 29. ágúst nk.

Virð­ing­ar­fyllst,
Rit­stjórn Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár