Trump hótar auka 300 milljarða dollara tollum á kínverskar vörur

Nýir tollar yrðu til þess að næstum allar innfluttar kínverskar vörur hefðu auka­álögur. Hótunin kemur í kjölfar misheppnaðra samninga­viðræðna bandarískra og kínverskra stjórn­valda.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, hótar nýjum tollum á kínverskan innflutning til Banda­ríkjanna að virði 300 milljarða dollara. Trump segir tollana munu taka gildi í næsta mánuði. Forsetinn tilkynnti um hina nýju tolla í kjölfar misheppnaðra samninga­viðræðna bandarískra stjórn­valda við kínversk stjórn­völd.

Hinir nýju tollar myndu koma ofan á hinar 25 prósenta álögur á kínverskan innflutning sem nú þegar eru í gildi. Þær álögur hafa orðið til þess að næstum allar vörur innfluttar frá Kína hafa auka­álögur. Trump sagði blaða­mönnum í gær að hann myndi halda áfram að leggja álögur á kínverskar vörur þar til að samningur náist. Wang Yi, utan­ríkis­ráðherra Kína, sagði í kjölfarið að það að leggja toll á kínverskar vörur myndi alls ekki leysa úr deilu ríkjanna.

Blaðamenn The New York Times benda á að ólíklegt sé að Trump gefi nokkuð eftir í samninga­viðræðum við kínversk stjórn­völd þar sem nú fer að styttast í forseta­kosningarnar í Banda­ríkjunum.

Í kjölfar færslu Trumps á Twitter, þar sem hann skýrði frá áætlun sinni að koma á enn hærri tollum á kínverskar vörur, féllu ýmis hlutabréf í verði sem og olíuverð sem má lesa nánar um hér og hér.

Kínversk stjórn­völd hafa harðlega gagnrýnt bandarísk stjórn­völd í kjölfar hótunar Trumps. Kínversk stjórn­völd geta ekki annað en komið á mótvægis­aðgerðum verði af aðgerðum Trumps, segir á vef Xinhua, kínversks ríkis­fjölmiðils. Jafnframt segir í fréttinni að tollarnir myndu hafa neikvæð áhrif á heims­hagkerfið og að kínversk stjórn­völd vilji ekki fara í viðskipta­stríð en þau óttist það heldur ekki.

Tveggja daga samninga­viðræður hafa átt sér stað í Shanghai á milli kínverskra og bandarískra yfirvalda. Vegna þess hversu illa tókst að komast að samkomu­lagi hefur verið efnt til annarra viðræðna í Washington í næsta mánuði.

Í júní sendu hundruð viðskipta­manna talsmenn sína á fund Trumps til þess að lýsa yfir áhyggjum sínum á þróun mála og mótmæla auknum tollum á innfluttum kínverskum vörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár