Hvaðan kemur auðurinn hjá ríkasta manni heims?

Bill Gates á ennþá 2,3 prósent í Microsoft. Hann hefur selt eignar­hluti í tölvu­risanum að undan­förnu og dreift eignum þó nokkuð.

Bill Gates er stofnandi Microsoft og einn ríkasti maður heims.
Bill Gates er stofn­andi Microsoft og einn rík­asti maður heims. Mynd: EPA

Bill Gates, annar stofnenda Microsoft og nú auðugasti maður heims, hefur ákveðið, ásamt konu sinni Melindu, að ráðstafa öllum auði sínum í rann­sóknar- og styrktar­starf, einkum á sviði heil­brigðis- og mennta­vísinda. Þau hafa þegar byggt upp risavaxna stofnun til að halda utan um þetta verkefni þeirra, en hún heitir Bill & Melinda Gates Foundation og er með höfuð­stöðvar í Seattle, þar sem Bill og Melinda búa og starfa.

Forbes birti í dag nýjan lista yfir auðugasta fólk heims og er Bill Gates efstur á listanum með hreina eign upp á 86,6 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um tíu þúsund milljörðum íslenskra króna. Bill Gates hefur verið 18 sinnum í efsta sæti á lista Forbes af síðustu 23 árum.

Ekki lengur bara Microsoft

Stærstur hluti eigna Gates var lengi vel bundinn við eignar­hluti hans í Microsoft, sem rekja má til stofnunar fyrir­tækisins árið 1975. Hann er í dag tækni­legur ráðgjafi fyrir­tækisins og stjórnar­meðlimur.

Að undan­förnu hefur hann hins vegar selt töluvert af hlutum í fyrir­tækinu og nemur eignar­hlutur hans 2,3 prósentum í dag. Í ljósi stærðar fyrir­tækisins er það stór eign fyrir fjárfesti og nemur hún um 11,2 milljörðum Bandaríkja­dala.

Eignirnar eru í dag bundnar meðal annars í sjóðum sem fjárfesta í fasteignum og nýsköpunar­fyrirtækjum. Þá hefur Gates fjárfest verulega í innviðum og fyrir­tækjum sem koma að þeim, með einum eða öðrum hætti. Hann á stóran eignar­hlut í Canadian National Railway, sem býr til og leggur lestar­teina, og smíðar stoð­grindur fyrir ýmsar tegundir lesta. Þá á Gates einnig verðmæta eignar­hluti í dráttar­vélar­fram­leiðandanum Deere & Co. og bíla­sölu­fyrirtækinu AutoNation.

Gott að eiga góða granna

Nýjast stóra fjár­festing hans er stofnun sjóðsins Breakthrough Energy Investmend Fund, en stofn­framlag Gates í hann var einn milljarður Bandaríkja­dala. Meðstofnendur hans eru margir af auðugustu mönnum heims, þar á meðal nágranni hans við Lake Washington, Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon. Hann er nú þriðji ríkasti maður heims, með eignir upp á 73,5 milljarða Bandaríkja­dala, sem að stærstum hluta eru bundnar í eignar­hlutum í Amazon, en hann á ennþá tæplega 17 prósent hlut í félaginu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár