Kubbaframleiðandi kljáist við Kínverja

LEPIN er kín­verska eft­ir­mynd LEGO en er alls ekki á vegum LEGO-fyr­ir­tæk­is­ins danska. LEGO ætlar að höfða mál gegn LEPIN.

Ekki er allt sem sýnist. Umbúðir og útlit LEPIN-kubba eru nær alveg eins og af LEGO-kubbum.
Ekki er allt sem sýn­ist. Umbúðir og útlit LEPIN-kubba eru nær alveg eins og af LEGO-kubbum.

Kín­verskur auð­maður lætur fram­leiða, og selur í stórum stíl, kubba sem eru nákvæm eft­ir­lík­ing hinna heims­þekktu dönsku LEGO kubba. Kín­versku kub­b­arnir heita LEPIN og kubbak­ass­arnir eru nákvæm­lega eins og LEGO-kass­arnir, gulir og rauðir. LEGO hefur stefnt auð­mann­inum, mála­ferlin hófust fyrir nokkrum dögum.

LEGO-fyr­ir­tækið er næst stærsti leik­fanga­fram­leið­andi heims, aðeins Mattel fyr­ir­tækið er stærra. Vöru­merki LEGO er sömu­leiðis eitt hið þekktasta í heimi, „allir þekkja LEGO“ er slag­orð sem fyr­ir­tækið notar iðu­lega. LEGO-kub­b­arnir komu á mark­að­inn 1949 og hafa verið fram­leiddir nær óbreyttir allar götur síðan. Kub­b­arnir eru ein­hver vin­sæl­ustu leik­föng barna um víða ver­öld og þótt sífellt komi ný leik­föng á mark­að­inn er alltaf jafn gaman „að kubba”. Vöru­úr­valið hjá LEGO er marg­falt meira en var í upp­hafi en grunn­hug­myndin er alltaf sú sama, að raða saman kubbum og mögu­leik­arnir nær ótelj­andi. Starfs­menn LEGO eru tæp­lega 16 þús­und.

Margir hafa reynt að framleiða eftirlíkingar

Árið 1958 fékk LEGO einka­leyfi á því sem fyr­ir­tækið kall­aði „kassa­laga ein­ingar sem hægt er að raða saman”. LEGO hefur alla tíð notað gæða­plast í kubbana og fram­leiðslan ætíð verið á hendi fyr­ir­tæk­is­ins sjálfs, eina und­an­tekn­ingin er verk­smiðjan á Reykja­lundi sem fékk sér­stakt fram­leiðslu­leyfi um nokk­urra ára skeið (þeir kubbar eru safn­gripir!).

Á und­an­förnum árum hafa margir reynt að fram­leiða eft­ir­lík­ingar af LEGO-kubb­unum. LEGO-fyr­ir­tækið hefur fylgst nákvæm­lega með öllum slíkum til­raunum og hefur beitt öllum til­tækum ráðum til að stöðva, eða koma í veg fyrir, fram­leiðsl­una og höfðað tugi mála til að verja einka­leyfið. Margir hafa líka reynt að tengja vörur sínar, jafn­vel bari og kaffi­hús, með ein­hverjum hætti við LEGO en þá hafa lög­menn fyr­ir­tæk­is­ins brugð­ist hart við. Og nær alltaf haft betur.

LEGO í Kína

Á árs­fundi LEGO 2013 var greint frá því að fyr­ir­tækið hygði á mikla sókn í Asíu, einkum Kína. LEGO myndi reisa verk­smiðju skammt frá Shanghai. Áætlaður starfs­manna­fjöldi tvö þús­und manns, til að byrja með. Miklu púðri hefur verið eytt í kynn­ing­ar­starf­semi í Kína og á árs­fundi LEGO á síð­asta ári kom fram að kynn­ing­ar­starfið væri farið að skila sér, salan í Kína hefði marg­fald­ast.

Ma Yun eða Jack Ma

Kannski hljóma þessi tvö nöfn ekki kunn­ug­lega. Þau til­heyra reyndar bæði sama mann­inum. Kín­verskum auð­manni sem stofn­aði fyr­ir­tækið Alibaba og síðar net­sölu­fyr­ir­tækið Ali­Ex­press, sem er hið stærsta sinnar teg­undar í heim­inum í dag. Ma Yun er 52 ára, fæddur og upp­al­inn í borg­inni Hangzhou í austur Kína. Hann lærði ensku með því að umgang­ast erlenda ferða­menn, þeir áttu erfitt með kín­verska fram­burð­inn á nafni hans og því kall­aði hann sig Jack Ma sem var auð­veld­ara. Það er nú við­skipta­nafn hans.

Ma Yun, eða Jack Ma sagði frá því í við­tali að sem ungum manni hefði sér gengið illa að fá vinnu. Sem dæmi um þetta nefndi hann að löggan hefði ekki viljað sig, sagt að hann væri von­laus. Hann fékk heldur ekki vinnu hjá Kentucky Fried Chicken-fyr­ir­tæk­inu, hinir tutt­ugu og þrír umsækj­end­urnir voru allir ráðnir. En hann kom undir sig fót­unum, eins og sagt er, og er nú í hópi rík­ustu manna heims.

LEPIN eða LEGO

Áhugi Kínverja á LEGO fór ekki fram­hjá Jack Ma. Honum þótti verðið á kubb­unum frekar hátt og sá í hendi sér að hægt væri að fram­leiða þá og selja á mun lægra verði en LEGO-kubbana. Jack Ma var ekki í vand­ræðum með að finna kín­verska fram­leið­endur sem upp­fylltu gæða­kröfur hans og gátu fram­leitt kubbana á við­un­andi verði. Jack Ma vissi að hann gæti ekki kallað sína kubba LEGO en það var nú ekki stór­mál, bara að kub­b­arnir væru sem lík­astir fyr­ir­mynd­inni og umbúð­irnar líka. Og kub­b­arnir eru mjög líkir, nán­ast alveg eins að sögn kubbasér­fræð­inga. Þetta með nafnið þvæld­ist heldur ekki fyrir Jack Ma, eða Ma Yun. Kub­b­arnir fengu nafnið LEPIN, letrið á umbúð­unum er nákvæm­lega eins og á LEGO köss­unum. Og LEPIN-kub­b­arnir kosta helm­ingi minna en LEGO og hafa selst vel. En hafi Jack Ma haldið að LEGO myndi ekki haf­ast að skjátl­að­ist honum illi­lega. Þar á bæ biðu menn ekki átekta.

Málaferli

Í júní síð­ast­liðnum byrj­uðu lög­fræð­ingar LEGO að und­ir­búa mála­ferlin. Þeir eru ekki nýgræð­ingar á þessu sviði og þekkja vel til í kín­verskum laga­frum­skógum. Sjálf mála­ferlin hófust fyrir nokkrum dögum en ekki er búist við að nið­ur­staða fáist fyrr en seint á næsta ári, jafn­vel enn síðar. Þangað til getur Jack Ma selt LEPIN-kubbana án þess að LEGO-fyr­ir­tækið fái nokkuð að gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár