Björgólfur Thor meðal ríkustu manna heims - Á 208 milljarða eignir

Björgólfur Thor Björgólfsson, eigandi fjár­festinga­félagsins Novator, er meðal ríkustu manna heimsins, samkvæmt nýjum lista Forbes, en auðæfi hans eru metin á 1,6 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 208 milljörðum króna. 

Björgólfur Thor er númer 1.121 á lista Forbes yfir ríkasta fólk heimsins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björgólfs Thors eru meðal annars í fjarskipta­félögunum Play í Póllandi og WOM í Chile, auk þess að eiga eignar­hluti í félögunum Xantis Pharma og Allergan. 

Björgólfur Thor var á barmi gjald­þrots eftir hrun fjármála­kerfisins, og í persónu­legum ábyrgðum fyrir tugmilljarða­skuldum, en tókst að semja við kröfuhafa sína, halda eignar­hlutum í stórum fyrir­tækjum, meðal annars Actavis, sem síðan hefur sameinast öðrum félögum og stækkað, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár