Átta ríkustu menn heims eiga meira en helmingur jarðarbúa

Bill Gates er stofnandi Microsoft og einn ríkasti maður heims.
Bill Gates er stofn­andi Microsoft og einn rík­asti maður heims. Mynd: EPA

Átta ríkustu einstaklingar heimsins eiga meiri peningaleg verðmæti en helmingur jarðarbúa samkvæmt nýjustu skýrslu góðgerðar­samtakanna Oxfam, sem árlega greinir skiptingu auðs í heiminum og kynnir niður­stöður sínar á fundi World Economic Forum í Davos í Sviss.

Skýrslan miðar við eigna­stöðuna eins og hún var í lok árs 2015. Átta ríkustu einstaklingar heimsins voru þá Bill Gates, stofnandi Microsoft, Amnacio Ortega, stofnandi Zara, Warren Buffett, fjár­festir og forstjóri Berkshire Hathaway, Carlos Slim, eigandi fjarskiptarisans Grupo Carso, Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon, Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, Larry Ellison, forstjóri Oracle, og Michael Bloomberg, stofnandi og eigandi Bloomberg. Sex af átta ríkustu mönnum heims eru búsettir í Banda­ríkjunum, og þar af eru tveir nágrannar og búsettir við sama vatnið, Lake Washington á Seattle svæðinu, þeir Bill Gates og Jeff Bezos. Eigna­staða þeirra tveggja hefur reyndar breyst mikið frá því árið 2015, og þá sérstak­lega Bezos. Hann er nú metinn á tæplega 70 milljarða Bandaríkja­dala en ekki 45 milljarða eins og segir í skýrslu Oxfam.

Eignir þessara átta einstaklinga eru samtals á við eignir 3,6 milljarða manna á jörðinni.

Í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC segir breski hagfræðingurinn Gerard Lyons að það gefi ekki alltaf rétt mynd af stöðu mála, að einblína á þennan mikla mun þegar kemur að ríkidæmi einstaklinga.

Til dæmis hafi mikill árangur náðst í barátt­unni við fátækt í heiminum á undan­förnum árum, og hafi sjaldan eða aldrei færri búið við sára fátækt í heiminum eins og nú.

Bill Gates og Warren Buffett hafa báðir ákveðið að gefa meira en 95 prósent af eignum sínum til góðgerðar­starfs.

Hins vegar sé það rétt að draga fram mikla misskiptingu auðs, þar sem það nýtist í umræðum um viðskipta­módel fyrir­tækja og hvort þau séu fyrst og fremst að nýtast æðstu stjórn­endum og hluthöfum frekar en starfs­fólki. Þetta sé eitthvað sem þurfi sífellt að ræða um að meta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár