Yfirmaður hjá Kynnisferðum vildi að sem flestir tækju sér Hjalta til fyrirmyndar

Auk föður forsætis­ráðherra skrifaði fyrr­verandi yfirmaður Hjalta Hauks­sonar hjá Kynnis­ferðum upp á meðmæli fyrir hann. Kynnis­ferðir eru í eigu foreldra, föður­bróður, systkina og frændsystkina Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra.

Hjalti Sigurjón Hauksson
Hjalti Sigurjón Hauksson Fékk með­mæla­bréf frá föður for­sæt­is­ráð­herra og yfir­manni sínum innan fyr­ir­tækis í eigu fjöl­skyldu ráð­herr­ans. Mynd: Skjáskot af Facebook

„Hér með staðfesti ég undir­ritaður að um tíma hafði ég með höndum stjórn deildar innan Kynnis­ferða sem Hjalti Sigurjón Hauksson (...) vann hjá. Ég get af heilum hug staðfest að Hjalti er mjög samvisku­samur, vandvirkur, góður bílstjóri.“

Þannig hefst meðmæla­bréf Sveins Eyjólfs Matthíassonar, eins af þremur umsagnar­aðilum Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, vegna umsóknar hans um uppreist æru.

Sveinn Eyjólfur var yfirmaður Hjalta hjá Kynnis­ferðum, en Hjalta var sagt upp störfum hjá fyrir­tækinu árið 2013. Kynnis­ferðir eru meðal annars í eigu foreldra, föður­bróður, systkina og frændsystkina Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra.

Eins og greint var frá í gær undir­ritaði Benedikt Sveinsson, faðir forsætis­ráðherra, meðmæli fyrir Hjalta þegar hann sótti um uppreist æru.

Hjalti var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðis­brot gegn stjúpdóttur sinni árið 2004 en var sæmdur óflekkuðu mannorði af íslenska ríkinu í fyrra. 

Hann fékk meðmæli frá föður forsætis­ráðherra en jafnframt frá Haraldi Þór Teitssyni, framkvæmda­stjóra rútu­fyrir­tækisins Teits Jónassonar, og áður­nefndum Sveini Eyjólfi.

Í umsögn sinni lýsir Sveinn Hjalta með eftir­farandi hætti: „Hann er í hópi bestu fagmanna á sínu sérsviði og væri óskandi að sem flestir gætu tekið hann sér til fyrir­myndar. Honum er að auki umhugað um heill og farsæld vinnu­veitenda sinna og hag verkkaupa.“

Þá kemur fram að Hjalti sé þekktur fyrir ljúflyndi og sé þægilegur og umgengnis­góður í hvívetna. „Með glaðværð sem smitar út frá sér og skapar gott og hlýtt andrúms­loft.“

Eins og Stundin greindi frá í gær hafa Benedikt Sveinsson, faðir forsætis­ráðherra og einn af eigendum Kynnis­ferða, og Hjalti Sigurjón Hauksson þekkst í mörg ár. Hjalti hefur sagst þakklátur Benedikt fyrir að hafa staðið með sér í gegnum súrt og sætt og útvegað sér vinnu hjá Kynnis­ferðum. 

Erla Hlyns­dóttir, fjölmiðla­kona sem starfar nú sem framkvæmda­stjóri þing­flokks Pírata, rifjar upp á Facebook að árið 2013 hafi hún skrifað frétt um það þegar Hjalta Sigurjóni var sagt upp hjá Kynnis­ferðum.

„Hann hringdi í mig eftir að fréttin birtist, sagði ósann­gjarnt að honum hefði verið sagt upp, sér í lagi í ljósi þess að yfirmenn Kynnis­ferða hefðu vitað að hann væri dæmdur barna­níðingur, og hefði hann starfað þar í nokkur ár, en hefði viljað gefa honum tækifæri,“ skrifar Erla. 

Þegar Stundin ræddi við brotaþola Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, stjúpdótturina sem hann var dæmdur fyrir að hafa misnotað kynferðis­lega nær daglega í tólf ár, sagðist hún spyrja sig hvort það væri tilviljun að Hjalti hefði viljað vinna við að keyra bíla hjá Kynnis­ferðum einmitt þegar hún sjálf var í vinnu sem krafðist þess að hún fengi reglulega far með rútum fyrir­tækisins. Sagði hún það hafa valdið sér óþægindum að Hjalti starfaði hjá Kynnis­ferðum, en hún gætt þess að sneiða hjá því að hitta hann.

Uppfært 18. september:

Sveinn Eyjólfur Matthíasson segir að bréfið hann sem undir­ritaði hafi verið ætlað til stuðnings umsóknar Hjalta um starf hjá olíu­dreifingar­fyrirtæki. Hjalti hafi lofað því að bréfið yrði ekki notað til umsóknar um önnur störf. „Afrit af meðmæla­bréfinu sem Hjalti Sigurjón skilaði inn vegna umsóknar sinnar um uppreist æru barst mér ekki fyrr en laugar­daginn 16. september s.l. frá ráðuneytsistjóra dómsmálaráðuneytsins. Ég ritaði ekki undir það meðmæla­bréf og kannast ekki við þá umsögn sem mér er ætluð,“ segir í yfir­lýsingu frá Sveini Eyjólfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár