Fólki fjölgar meira á Norðurlöndunum en annars staðar í Evrópu

Samkvæmt skýrslu frá Norrænu ráðherra­nefndinni er helsta ástæða fólks­fjölgunarinnar aðflutningur fólks frá löndum utan Norður­landa.

Fólki fjölgar meira á Norður­löndunum en annars staðar í Evrópu. Helsta ástæða fólks­fjölgunarinnar er aðflutningur fólks frá löndum utan Norður­landa. Frá árinu 2000 hafa 4,3 milljónir fólks flust til Norður­landanna á sama tíma og 2,5 milljónir hafa fluttst á brott. Aðfluttir umfram brott­flutta eru því 1,8 milljónir manna.

Þetta er meðal niður­staðna sem greint er frá í State of the Nordic Region 2018, nýrri skýrslu frá Norrænu ráðherra­nefndinni. Í skýrslunni eru bornar saman upplýsingar frá 74 svæðum Norður­landanna í máli og aðgengi­legum kortum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Nordregio. 

Fólk flytur til Norður­landanna af ýmsum ástæðum svo sem vegna vinnu og náms, segir í tilkynningunni. Einnig er greint frá því að af fólki á flótta hafi hlutfalls­lega flestir leitað til Svíþjóðar þar sem hælis­leitendur voru 16,7 á hverja 1000 íbúa árið 2015, þegar straumur flótta­fólks var sem mestur. Samsvar­andi tala fyrir Noreg er 6,0 og Finnland fylgir á eftir með 5,9. Á síðustu 20 árum hafi þeim sem fæddir eru utan Norður­landanna fjölgað úr 6,5 prósent árið 1995 í 14,3 prósent tuttugu árum síðar.

Að Grænlandi undan­skildu hefur fólki fjölgað á öllum Norður­löndunum undan­farin tíu ár og hefur heildar mann­fjöldinn farið úr 25 milljónum í 27 milljónir. Hlutfalls­lega var fjölgunin mest í Noregi eða 12,3 prósent en næstmest á Íslandi þar sem hún var 10 prósent. Í fjölmennasta norræna ríkinu, Svíþjóð hefur íbúum fjölgað um 9,7 prósent. Frá 2007 til 2017 var fjölgun á svæðinu öllu 8,1 prósent og má búast við að árið 2030 verði íbúarnir orðnir 30 milljónir.

Norðurlandabúar að eldast

Þróunina má jafnframt rekja til fjölgunar í árgöngum eldra fólks sem eru hlutfalls­lega fjölmennari á Norður­löndunum en að meðaltali í Evrópu. Fjölgunin er mest á þéttbýlis­stöðum, bæði vegna flutnings ungs fólks til borganna og vegna aðflutnings fólks frá öðrum löndum.

Almennt eru Norður­landabúar að eldast. Samkvæmt skýrslunni er ástæðan fyrst og fremst afar stórir árgangar fólks á aldrinum 65 til 79 ára þar sem hlutfalls­lega fleiri lifa lengur en áður. Fram­reikningur sýnir að fólki mun halda áfram að fjölga fram til 2030 en þó örlítið hægar en verið hefur.

Á stórum svæðum í Finnlandi má búast við að helmingur full­orðinna íbúa verði eldri en 65 ára árið 2030. Aðeins á örfáum svæðum eins og í Stokk­hólmi, Kaupmanna­höfn, Osló og Reykjavík hefur skiptingin milli fólks á vinnu­færum aldri og fólks á eftirlauna­aldri annað hvort lagast eða eða skekkst minna en annars staðar.

Borgir stækka

Á öllum Norður­löndunum stækka borgirnar. Sé litið til þróunar fram til 2030 er búist við því að fólks­fjölgun á svæðunum í kringum Kaupmanna­höfn/Malmö, Stokkhólm, Ósló og Helsinki verði meira en 10 prósent. Nú er staðan sú að um 20 prósent alls fólks á Norður­löndunum býr í höfuð­borgunum og nágrenni þeirra.

Borgirnar stækka ekki síst vegna þess að unga fólkið flytur þangað til náms eða starfa, auk þess sem stór hluti þeirra sem flytja til Norður­landanna sest að í borgum, segir í skýrslunni. Þetta hefur í för með sér að þrátt fyrir að íbúarnir eldist almennt séð, þá er þróunin mun hægari í stærstu borgum Norður­landanna.

Skýrslan er unnin af Nordregio, fræða­stofnun ráðherra­nefndarinnar í skipulags- og byggða­málum, sem hefur gefið út sambærilegar skýrslur í mörg ár. Auk kafla um lýðfræði, efnahagsmál og vinnu­markað eru kaflar um um stafræna tækni­þróun, lífhagkerfi, heilsufar og menningu.

Hægt er að fræðast frekar um skýrsluna á norden.org.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár