Verslunarskólanemi eignaðist viðskiptaveldi eftir að faðir hans var dæmdur til greiðslu skaðabóta

Lyf og heilsa, næst stærsta lyfja­verslun lands­ins, var skráð sem eign nítján ára versl­un­ar­skóla­nema eftir að Karl Wernersson, faðir hans, var dæmdur til að greiða millj­arða í skaða­bætur í efna­hags­brota­máli. Jafn­aldri nýs eig­anda, sem er blaða­maður á Við­skipta­blað­inu, er orð­inn vara­maður í stjórn félags­ins sem á Lyf og heilsu eftir flétt­una.

Verslunarskólanemi eignaðist viðskiptaveldi eftir að faðir hans var dæmdur til greiðslu skaðabóta
Karl Wernersson Félag hans, Milestone, átti stóran hlut í Sjóvá og Glitni fyrir hrun. Það seldi Karli Lyf og heilsu skömmu áður en það fór í gjald­þrot.

Nítján ára piltur varð skyndi­lega skráður eig­andi næst stærstu lyfja­versl­un­ar­keðju lands­ins og umsvifa­mik­ils fast­eigna­fé­lags eftir að faðir hans var dæmdur til að greiða millj­arða króna í skaða­bætur vegna efna­hags­brota.

Pilt­ur­inn, sem var nem­andi í Versl­un­ar­skóla Íslands, skellti á frétta­mann RÚV sem gerði til­raun til að spyrja hann út í við­skipti þeirra feðga í sím­tali. 

Jón Hilmar KarlssonEr orð­inn umsvifa­mik­ill í fast­eigna­rekstri og lyf­sölu eftir að faðir hans var dæmdur til að greiða skaða­bætur. Skjáskot af Facebook.

Jón Hilmar Karlsson er nú 21 árs gam­all. Hann er sonur Karls Wernerssonar, eins umsvifa­mesta fjár­festis Íslands fyrir hrun, sem kenndur var við Milestone og átti stóran hlut í Sjóvá og Glitni. Karl var dæmdur í Hæsta­rétti í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyrir efna­hags­brot og var nú í mars dæmdur til að greiða þrota­búi Milestone um tíu millj­arða króna ásamt bróður sínum og for­stjóra félags­ins. 

Fékk að leiðrétta skráningu eftir dóm

Við­skipti Karls og sonar hans áttu sér stað eftir að Karl var dæmdur til greiðslu skaða­bóta vegna þess að hann og bróðir hans létu Milestone greiða fyrir hluta­bréf Ingunnar, systur hans, í félag­inu. Eign­ar­hald systk­in­anna á Milestone var meðal ann­ars í gegnum aflands­fé­lög. Samkvæmt mati dóm­stóla var samn­ingur um kaup á hluta­bréfum á milli bræðr­anna og Ingunnar Wernersdóttur, en ekki Ingunnar og Milestone, og voru bræð­urnir því metnir bóta­skyldir gagn­vart þrota­búi Milestone.

Með við­skipt­unum við son sinn hefur Karl mögu­lega náð að fyr­ir­byggja að gengið verði að Lyfjum og heilsu vegna skaða­bóta­dóms­ins.

Karl lét senda inn leið­réttan árs­reikn­ing til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra dag­inn eftir að hann var dæmdur til greiðslu skaða­bót­anna í apríl í fyrra, fimm mán­uðum eftir að árs­reikn­ingnum var skilað inn. Í leið­réttum árs­reikn­ingi kom fram að sonur hans væri orð­inn eig­andi þegar í árs­lok árið 2014. Jón Hilmar varð nítján ára árið 2014.

Ein af eignum Milestone var Lyf og heilsa, en svo vildi til að Milestone hafði selt félagi Karls Wernerssonar lyfja­versl­un­ar­keðj­una skömmu fyrir hrun, sem skipta­stjóri Milestone taldi að sner­ist um að forða Lyfjum og heilsu frá kröfu­höfum. 

Stóran hluta síð­asta árs var Jón Hilmar, þá nýr eig­andi Lyfja og heilsu sam­kvæmt leið­réttum papp­írum, í heims­reisu í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku. 

Lyf og heilsa rekur á þriðja tug lyfja­versl­ana um land allt undir nöfnum Lyfja og heilsu, Apó­tek­ar­ans og Gamla apó­teks­ins.

Blaðamaður Viðskiptablaðsins í varastjórn

Hörður Guð­munds­son21 árs vara­maður í stjórn félags­ins sem rekur á þriðja tug lyfja­versl­ana.

Þann 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn var síðan send til­kynn­ing til Rík­is­skatt­stjóra um að Jón Hilmar hefði verið kos­inn í stjórn Toska ehf, sem á Lyf og heilsu. 

Vinur, jafn­aldri og skóla­fé­lagi Jóns Hilmars úr Versl­un­ar­skól­anum, Hörður Guð­munds­son, var skráður vara­maður í stjórn Toska ehf. á sama tíma. Hörður er blaða­maður á Við­skipta­blað­inu og stjórn­ar­maður í Heimdalli, félagi ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, en hann bauð sig fram til for­mennsku í Heimdalli seint á árinu 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár