Veitti kunningja yfirdrátt en lagði inn á sjálfan sig

Júlíus Hólm Bald­vins­son leigu­bíl­stjóri situr uppi með tæpan fimm millj­óna króna yfir­drátt sem fyrr­ver­andi úti­bús­stjóri Spari­sjóðs Vest­mann­eyja á Selfossi lagði inn á sjálfan sig. Úti­bús­stjór­inn fyrr­ver­andi, sem grun­aður er um nokk­urra millj­óna króna fjár­drátt í bank­anum, við­ur­kennir að hafa ekki staðið við sinn hluta samn­ings­ins. Júlíus hefur kært málið til lög­reglu.

Veitti kunningja yfirdrátt en lagði inn á sjálfan sig
Stóð ekki við sam­komu­lagið Pétur úti­bús­stjóri við­ur­kennir að hafa ekki greitt Júlíusi af lán­inu. „Við gerðum heið­urs­manna­sam­komu­lag, sem ég hef reyndar kannski ekki alveg staðið við,“ segir Pétur.

Pétur Ármann Hjalta­son, fyrr­ver­andi úti­bús­stjóri hjá Spari­sjóði Vest­manna­eyja á Selfossi, veitti kunn­ingja sínum, Júlíusi Hólm Bald­vins­syni leigu­bíls­stjóra, 4,6 millj­óna króna yfir­drátt og milli­færði upp­hæð­ina síðan á sjálfan sig. Júlíus segir úti­bús­stjór­ann þáver­andi hafa beðið sig um tíma­bundið lán í sept­em­ber 2013, en ekki greitt sér til baka. Alla tíð síðan hefur Júlíus þurft að greiða vexti og afborg­anir af lán­inu. Hann hyggst nú fara með málið til lög­reglu.

„Við vorum kunn­ingjar og hann var á þessum tíma úti­bús­stjóri hjá spari­sjóðnum,“ segir Júlíus í sam­tali við Stundina. „Ég fór nú stundum til hans í bank­ann að spjalla að gamni, því við þekkt­umst, og í eitt skipti sem ég kom spurði hann upp úr þurru: „Treyst­irðu mér?“ Ég sagð­ist gera það og þá spurði hann hvort ég gæti reddað sér. Hann væri við það að missa húsið og þyrfti lán fram yfir næstu mán­aða­mót. Þá myndi hann greiða allt til baka. Hann redd­aði mér þá yfir­drætti upp á 4,6 millj­ónir og setti það inn á sinn reikn­ing. Meira vissi ég ekki.“

Pétur stóð hins vegar ekki við orð sín og strax um næstu mán­aða­mót þurfti Júlíus að borga vexti af yfir­drætt­inum. Júlíus seg­ist hafa gengið 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu