Varaði við skatti á þá ríkustu: „Þeir geta farið til útlanda“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mælti gegn upp­töku stór­eignakatts í umræðum um fjár­lög í dag.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Var í efsta sæti fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík norður. Mynd: xd.is

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var­aði við skatt­lagn­ingu á þá auð­ug­ustu á Alþingi í dag í umræðu um fjár­lög næsta árs. Sagði Guð­laugir Þór að þeir efna­mestu gætu ein­fald­lega forð­ast skatt­inn. 

Guð­laugur brást við til­lögu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, um að lagður yrði stór­eigna­skattur á eignir umfram 75 millj­ónir króna hjá ein­stak­lingum og 100 millj­ónum króna hjá hjónum upp á 1,5 til 2 pró­sent. 

„Það er erfitt að ná í þá allra rík­ustu.“

„Það er erfitt að ná í þá allra rík­ustu. Þeir geta farið til útlanda, og hafa svo sann­ar­lega gert það, til að kom­ast undan sköttum,“ sagði Guð­laugur Þór.

Auð­legð­ar­skattur var lagður á af vinstri stjórn Vinstri grænna og Sam­fylk­ing­ar­innar á árunum 2009 til 2013 en féll úr gildi í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks. Litið hafði verið á hann sem tíma­bundið svar við efna­hag­skreppu í kjöl­far banka­hruns­ins.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjárlög 2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár