Var mótfallin 14 prósenta vaski á ferðaþjónustu en vill nú 24 prósent

Ný rík­is­stjórn afsal­aði sér millj­arða skatt­tekjum frá ferða­þjón­ust­unni með því að falla frá hækkun virð­is­auka­skatts upp í 14 pró­sent. Við­horfs­breyt­ing hefur orðið hjá for­manni fjár­laga­nefndar.

Var mótfallin 14 prósenta vaski á ferðaþjónustu en vill nú 24 prósent

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, vill að virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu verði hækk­aður upp í efra þrep, eða í 24 pró­sent. Árið 2013 greiddi hún hins vegar atkvæði með því að fallið yrði frá hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu upp í mið­þrep, 14 pró­sent. Rökin á bak við laga­breyt­ing­una voru þau að hækkun myndi hafa slæm áhrif á eft­ir­spurn í atvinnu­grein­inni, flækja kerfið og skaða ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki.

Virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu er nú 11 pró­sent, eftir að núver­andi rík­is­stjórn hækk­aði lægsta þrep skatts­ins úr 7 pró­sentum, þar með talin mat­væli. 

Í við­tali við Vigdísi Hauks­dóttur í Frétta­blað­inu um helg­ina seg­ist hún vera tals­maður þess að hugað verði að því að afnema íviln­anir í ferða­þjón­ustu, enda þurfi nú að „hugsa málin upp á nýtt“ í ljósi þess að ferða­þjón­ustan sé orðin „svipað stór í veltu og sjáv­ar­út­veg­ur­inn“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár