Tony með sáttatilboð frá Gísla Frey

Flótta­maðurinn íhugar tilboðið á Ítalíu. Evelyn tók sáttaboði aðstoðar­mannsins fyrr­verandi. Fordæmi um 500 þúsund í bætur.

Sáttahugur
Sátta­hugur Gísli Freyr Val­dórs­son leggur nú alla áherslu á að ná sátt við þolendur sína í leka­mál­inu. Mynd: Af vef innanríkisráðuneytisins

Flótta­maðurinn Tony Omos hefur, samkvæmt heimildum Stundarinnar, fengið tilboð frá Gísla Frey Valdórs­syni um bóta­greiðslu vegna leka­málsins. Tony, sem er á Ítalíu, er að íhuga tilboðið frá aðstoðar­manninum fyrr­verandi. 

Sátt hefur náðst í máli Evelyn Glory og aðstoðar­mannsins um skaða­bætur. Dóma­fordæmi eru fyrir því að greiða 500 þúsund krónur í bætur vegna leka. Slíkt fordæmi er að finna í dómi nemanda frá Akranesi. Dagbók hans var lekið með upplýsingum um viðkvæm mál. Dómurinn úrskurðaði um bætur upp á 500 þúsund krónur.   

,,Ég get staðfest að það er sátta­hugur af hálfu Gísla. Tony er með það skoðunar að taka sátt í málinu," segir Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Tony Omos. Hann vill ekki upplýsa hvað upphæð er verið að tala um í sátta­boðinu en Tony krafðist upphaf­lega 5 milljóna króna. . . 

,,Ég get staðfest að það er sátta­hugur af hálfu Gísla. Tony er með það skoðunar að taka …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár