Þrívíddarbíó dýrara fyrir þá sem nota gleraugu

Það hefur færst í vöxt í Hollywood að taka upp og sýna kvik­myndir í þrí­vídd en því fylgir auk­inn kostn­aður fyrir þá bíó­gesti sem sækja slíkar sýn­ingar. Til þess að njóta kvik­myndar í þrí­vídd þarf sér­stök þrí­vídd­ar­gler­augu sem seld eru sér hér á landi. Fyrir þá sem nota gler­augu að stað­aldri getur reynst ansi dýrt að sækja slíkar sýn­ingar.

Þrívíddarbíó dýrara fyrir þá sem nota gleraugu
350 til 700% verð­munur Fyrir þá sem sjá eðli­lega kosta þrí­vídd­ar­gler­augu aðeins 170 til 175 krónur hér á landi. Fyrir þá sem þurfa að nota gler­augu þá þarf að kaupa sér­stök þrí­vídd­ar­gler­augu með klemmu en þau kosta ann­ars vegar 600 krónur í Smára­bíói og hins vegar 1200 krónur hjá Sam­bíó­unum. Mynd: AMG

Kvik­myndir sem teknar eru upp í þrí­vídd njóta sívax­andi vin­sælda úti um allan heim en fyrir hinn almenna bíó­gest þýðir þetta auka­kostnað því kaupa þarf sér­stök þrí­vídd­ar­gler­augu til þess að geta yfir höfuð horft á kvik­mynd­ina. Þrí­vídd­ar­gler­augu hér á landi eru seld sér og við inn­gang­inn en gríð­ar­legur verð­munur er á þessum gler­augum hér á landi.

Þannig kosta þrí­vídd­ar­gler­augu fyrir þá sem ekki þurfa að nota gler­augu að stað­aldri aðeins 170 krónur hjá Sam­bíó­unum og 175 krónur hjá Smára­bíói en þessi kvik­mynda­hús eru rekin af sitt­hvorum aðil­anum. Þegar aftur á móti kemur að þeim sem þurfa að nota gler­augu að stað­aldri þá verður bíó­ferðin aðeins flókn­ari.

Dýrara fyrir þá sem ekki sjá vel

Ekki eru öll gler­augu þannig að hægt sé að setja þessi hefð­bundnu þrí­vídd­ar­gler­augu utan um þessi sem notuð eru frá degi til dags og því þarf að kaupa sér­stök þrí­vídd­ar­gler­augu. Þau eru þannig að þrí­vídd­ar­gler­aug­unum er smellt utan á þessi hefð­bundnu og þannig getur sá sem ekki sér mjög vel notið kvik­mynd­ar­innar líkt og þessi sem ekki þarf á gler­augum að halda. En á þessum tveimur teg­undum af þrí­vídd­ar­gler­augum er gríð­ar­legur verð­munur. Þannig kosta þrí­vídd­ar­gler­augu með klemmu 1.200 krónur hjá Sam­bíó­unum og 600 krónur hjá Smára­bíói.

Stundin hafði sam­band við Alfreð Ásberg Árnason, fram­kvæmda­stjóra Sam­bíó­anna á Íslandi, til þess að fá að vita hvers vegna svo mik­ill verð­munur væri á þessum gler­augum, af hverju klemmu­laus þrí­vídd­ar­gler­augu kost­uðu 170 krónur en með klemmu 1.200 krónur en þarna er um 700 pró­sentu verð­mun að ræða.

Snéri út úr og ræddi um miðaverð erlendis

Alfreð Ásberg sagð­ist lítið vita um málið því hann væri ekki með þetta fyrir framan sig og spurði blaða­mann Stund­ar­innar hvort hann vissi hvað það kost­aði að fara í bíó í Banda­ríkj­unum. Þegar Alfreð var minntur á að spurn­ingin snérist um verð­mun á þrí­vídd­ar­gler­aug­unum þá sagð­ist hann ekki vita það því hann væri ekki með upp­lýs­ing­arnar fyrir framan sig. Síðan lagði hann á.

Stundin sótt­ist eftir þessum upp­lýs­ingum hjá rekstr­ar­að­ila Smára­bíós en það er fyr­ir­tækið Sena. Þar á bæ var engin til svara um þennan mis­mun en venju­leg þrí­vídd­ar­gler­augu kosta, eins og áður segir, 175 krónur hjá þeim en þessi með klemm­unni 600 krónur og er því um rúman 350 pró­senta mun að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár