„Þeir sögðu mér að drepa mig því ég væri hommaógeð“

Eftir hinsegin fræðslu var öskrað á hann og þegar hann vildi kaupa legg­ings var hann rek­inn út úr búð­inni. Jón Ágúst Þór­unn­ar­son er hinsegin og segir for­dómana leyn­ast víða í íslensku sam­fé­lagi, jafn­vel innan Sam­tak­anna '78.

Fjögurra ára gam­all bað hann um bleikan pollagalla. Átta ára mætti hann sem Lísa í Undra­landi á bún­inga­ball. Alla hans æsku fékk hann að heyra að hann væri hommi. En Jón Ágúst Þór­unn­ar­son er ekki hommi. Hann er hinsegin.

Jón Ágúst er rétt að verða tví­tugur en hefur tekið þátt í ung­liða­starfi Sam­tak­anna '78 und­an­farin ár og sinnt jafn­inga­fræðslu á þeirra vegum. Sumarið eftir 10. bekk kynnt­ist hann tví­kyn­hneigðri stelpu sem dró hann með sér á fund. Þar leið honum svo vel að hann ákvað að fara aftur og hálfu ári síðar var hann kom­inn í stjórn. 

„Ég hef alltaf vitað að ef ég verð ást­fang­inn þá verð ég bara ást­fang­inn óháð kyni við­kom­andi. Það teng­ist körlum ekk­ert sér­stak­lega. Sumir kalla það pan en ég vil ekki skil­greina mig þannig. Ég vissi alla­vega alltaf að það væri ekki svo ein­falt að það væru allir eins, og allir gagn­kyn­hneigðir.“

Árás eftir fræðslu 

Á fundum ung­liða­hóps­ins kynnt­ist Jón Ágúst góðum krökkum. „Ég lenti mikið í ein­elti þegar ég var yngri og pass­aði aldrei neins staðar inn. Þetta var mjög góður staður fyrir svona strák eins og mig því þarna var ekk­ert ein­elti og engir for­dómar. Hvernig sem ég var þá var ég alltaf vel­kom­inn, ég þurfti ekk­ert að skil­greina það þegar ég mætti. Ég gat bara komið inn, fengið að læra af krökk­unum og kynn­ast sjálfum mér um leið.“

Það er þó ekki allt tekið út með sæld­inni. Þegar Jón Ágúst var eitt sinn með hinsegin fræðslu fyrir mennta­skóla­nem­endur mætti hann for­dómum. Það var hvorki í fyrsta né síð­asta skipti sem Jón Ágúst mætti for­dómum. Þarna var það þó sér­lega átaka­legt, þar sem hann hafði heim­sótt skól­ann með það að marki að reyna að fræða nem­endur og auka umburð­ar­lyndi. Eftir fræðsl­una stóð hann á bílaplan­inu fyrir utan skól­ann þegar stráka­hópur kom keyr­andi. „Þeir keyrðu hægt fram hjá mér og köll­uðu alls­konar illum nöfnum að mér. Þeir sögðu mér að drepa mig því ég væri hommaó­geð. Ég væri ógeðs­legur og ætti að láta mig hverfa. Það væri best ef ég lægi dauður ein­hvers staðar, ég ætti ekki að troða mér í skól­ann þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár