Sumarið kemur kannski eftir 10 daga

Frost og snjó­koma um helg­ina. Kulda­skeið að ganga í garð.

Sumarið kemur kannski eftir 10 daga
Kuldinn kemur Páll Berg­þórs­son, fyrr­ver­andi veð­ur­stofu­stjóri, segir að sum­arið komi ekki fyrr en eftir 10 daga.

Þrátt fyrir að sum­ar­dag­ur­inn fyrsti sé á morgun bólar ekki á sumr­inu. Frost verður um allt land um helg­ina og ekki fyr­ir­sjá­an­legt að það hlýni á næst­unni. Á laug­ar­dag verður 10 stiga frost á hálend­inu. Í höf­uð­borg­inni verður eins stigs frost. Á sunnu­dag er spáð snjó­komu um norð­an­vert landið. Frostið verður frá allt frá 1 gráðu og upp í 7. 

Páll Berg­þórs­son, fyrr­ver­andi Veð­ur­stofu­stjóri, segir að þetta tíð­ar­far ráð­ist að miklu leyti af kuld­anum í sjónum. 

„Það verður kuldi í sex daga en hlýnar dálítið eftir 10 daga. Þá getur þetta farið að lag­ast," segir Páll sem fylgist grannt með öllu sem snýr að veðr­inu. 

Hann segir að ástandið sé óvenju­legt ef miðað sé við und­an­far­inn ára­tug þegar hlý­indi hafi verið ráð­andi. Ef miðað sé við sög­una megi reikna með því að kald­ara verði næstu árin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár