Tengir ásakanir og reiði almennings við hnignun kristinnar trúar

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, telur boð­orðin tíu úr Gamla testa­ment­inu vera á meðal grunn­stoða hins borg­ara­lega sam­fé­lags.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, telur að trú­girni gagn­vart ásök­unum standi í beinu sam­bandi við hnignun trú­ar­innar og sið­rof í íslensku sam­fé­lagi. Þá heldur hann því fram að boð­orðin tíu úr Gamla testa­ment­inu séu á meðal meg­in­stoða borg­ara­legs skipu­lags.

Þessar skoð­anir viðrar Hannes á Facebook-síðu sinni en tals­vert hefur verið fjallað um nauðg­un­ar­mál og með­ferð þeirra hjá lög­reglu í fjöl­miðlum und­an­farna daga.

„Tvær mann­teg­undir, náskyldar, hafa sprottið upp eftir banka­hrunið og siðarofið: netormar, sem reyna að naga í sundur þrjár meg­in­stoðir hins borg­ara­lega skipu­lags (trúna á rétt og rangt, boð­orðin tíu og Fjall­ræð­una; eign­ar­rétt­inn; fjöl­skyld­una), og ásök­un­ar­dólgar, sem slengja fram hverri ásök­un­inni af annarri og æsa upp trú­gjarnt fólk,“ skrifar Hannes og bætir við: „Líklega stendur trú­girni í beinu sam­bandi við hnignun trú­ar­innar og siðarofið. Þeir, sem engu trúa, trúa öllu.“ 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár