Svipt strætókortinu og sökuð um lygar

Strætókort Bylgju Páls­dóttur var gert upp­tækt og hún sökuð um að vera með falsað kort. Bylgja tekur strætó frá Akranesi á hverjum degi. Fram­kvæmda­stjóri Strætó segir að hátt í hund­rað fölsuð strætókort hafi verið gerð upp­tæk í jan­úar og talar um skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

Svipt strætókortinu og sökuð um lygar
Bylgja Pásdóttir Mynd: Úr einkasafni

Vagn­stjóri Strætó gerði strætókort Bylgju Páls­dóttur upp­tækt síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og var Bylgja sökuð um að hafa falsað kortið. Bylgja býr á Akranesi en vinnur á ferða­skrif­stofu í Reykja­vík. Hún seg­ist taka strætó til vinnu á hverjum degi og hafi því fjár­fest í níu mán­aða strætókorti með mynd af henni, sem kostar sam­kvæmt gjald­skrá 113.800 krónur. Bylgja seg­ist hins vegar hafa fengið það með afslætti á 99.800 krónur. „Ég hefði átt að hringja í lög­regl­una,“ segir Bylgja í sam­tali við Stundina en henni var mjög brugðið þegar vagn­stjór­inn neit­aði að afhenda henni kortið. Jóhannes Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, segir fölsuð strætókort hafa verið fram­leidd í stórum stíl að und­an­förnu og að fyr­ir­tækið hafi gert nokkra tugi slíkra korta upp­tæk í jan­úar. Þá við­ur­kennir hann að nokkur kort hafi verið gerð upp­tæk sem síðar kom í ljós að voru ekki fölsuð. „Þá höfum við brugð­ist við því og leið­rétt mis­skiln­ing­inn,“ segir hann.    

Sökuð um lygar

Bylgja seg­ist hafa ákveðið að taka strætó aðeins fyrr en vana­lega síð­ast­lið­inn fimmtu­dag vegna slæmrar veð­ur­spár. Vagn­stjór­inn hafi hins vegar litið mjög und­ar­lega á kortið hennar og spurt hvar hún hafi fengið það. „Ég sagð­ist hafa keypt það á net­inu. Þá spurði hann hvað það kost­aði, og ég svar­aði að það hefði kostað um 99 þús­und krónur.“ Bylgja segir bíl­stjór­ann 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár