Stjórnarmaður Fjármálaeftirlitsins á fjárfestingarfélag með lífeyrissjóðunum

Ásta Þórarins­dóttir, stjórnar­formaður Fjármála­eftirlitsins, á og rekur fjár­festingar­félag með tólf lífeyris­sjóðum. Byggja upp einka­fyrirtæki á sviði heima­hjúkrunar og lækninga í Ármúlanum. Stjórn­sýslulög ná meðal annars yfir stjórnar­menn FME.

Fjárfestir með lífeyrissjóðunum
Fjár­festir með líf­eyr­is­sjóð­unum Líf­eyr­is­sjóðir eiga hlut í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Evu Consortium sem Ásta Þóra­ins­dóttir á hlut í en hún er stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem hefur eft­ir­lit með starf­semi þeirra. Mynd: FME

Einn stærsti hluthafi lækninga­fyrir­tækisins Klíníkurinnar í Ármúlanum, Ásta Þórarins­dóttir, er stjórnar­formaður Fjármála­eftirlitsins, stofnunar sem meðal annars á að hafa eftirlit með lífeyris­sjóðunum sem eru meðhluthafar Ástu í fyrir­tækinu. Ásta á, ásamt sambýlis­manni sínum í gegnum eignarhalds­félag, 27 prósenta hlut í fyrir­tækinu Evu Consortium sem aftur á 20 prósenta hlut í Klíníkinni. Eva Consortium á einnig hlut í rekstra­félagi hótelsins sem einnig er rekið í Ármúlanum en hluti þess er sjúkra­hótel auk þess sem félagið á heima­hjúkrunar­fyrirtækið Sinnum ehf. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár