Söguleg úrslit á Spáni: Felldu gömlu valdaflokkana

Ný fram­boð bylta spænskum stjórn­málum. Gömlu valda­flokk­arnir töp­uðu fylgi í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á Spáni. Vinsæll aðgerðasinni næsti borg­ar­stjóri í Barcelona.

Söguleg úrslit á Spáni: Felldu gömlu valdaflokkana
Vinsæll aðgerðasinni Ada Colau, næsti borg­ar­stjóri Barcelona, hefur margoft verið í haldi lög­reglu vegna mót­mæla. Mynd: AFP

Spænski lýð­flokk­ur­inn og sós­í­alistar töp­uðu miklu fylgi í spænsku sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum um helg­ina en flokk­arnir tveir hafa ráðið ríkjum á Spáni ára­tugum saman. Svo virð­ist sem fram­boð, sem studd eru af nýju fjölda­hreyf­ing­unni Podemos, nái völdum í tveimur stærstu borgum lands­ins, Madrid og Barcelona.

Stærsti sig­ur­veg­ar­inn er án efa Ada Colau, næsti borg­ar­stjóri Barcelona og vin­sæll aðgerðasinni á Spáni, sem hefur helgað sig bar­átt­unni gegn fátækt. Árið 2013 fór hún til að mynda fyrir hópi sem lagði undir sig spænskan banka sem gekk að veði spænskra heim­ila vegna van­skila. Mynd af Colau þar sem hún er dregin í burtu af óeirða­lög­regl­unni hefur verið vin­sæl á sam­skipta­vefnum Twitter um helg­ina en Colau hefur margoft verið í haldi lög­reglu vegna mót­mæla. Sjálf var hún nærri því borin út af eigin heim­ili fyrir nokkrum árum. „Stjórn­mála­menn­irnir okkar for­gangs­röð­uðu og björg­uðu spænskum bönkum fremur en spænskum borg­urum,“ sagði hún nýlega í við­tali við NPR. Colau leggur áherslu á beint lýð­ræði, enda­lok útburðar, hún vill byggja fleiri félags­leg hús­næði í borg­inni og jafna lífs­gæði.  

„Stjórn­mála­menn­irnir okkar for­gangs­röð­uðu og björg­uðu spænskum bönkum fremur en spænskum borg­urum.“

Hertogynja eða kommúnisti?

Flokkur Colau, Barcelona en Comú, naut stuðn­ings hreyf­ing­ar­innar Podemos-hreyf­ing­ar­innar sem þýðir „Við getum“ og er afsprengi mót­mæla gegn ójöfn­uði og spill­ingu á árunum 2011-2012. Kosn­inga­banda­lagið Ahora Madrid í Madrid, höf­uð­borg Spánar, naut sömu­leiðis atfylgis Podemos. Í Madrid verður ein tveggja kvenna borg­ar­stjóri. Baráttan stendur á milli Esperönzu Aguirre, 63 ára her­tog­ynju úr lýð­flokknum, og Manuelu Carmena, 71 árs fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara og komm­ún­ista, sem bauð 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár