Smávægilegar bætur eftir kynferðisbrot

Skóla­stúlka, sem maður á Norð­ur­landi braut gegn kyn­ferð­is­lega, fær aðeins 75 þús­und krónur í bætur. For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu þurfti að greiða fimm­falt meira í miska­bætur vegna orða sem hann lét falla.

Smávægilegar bætur eftir kynferðisbrot

Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands eystra hefur dæmt mann sekan um kyn­ferð­is­brot gegn tveimur börnum en gerir mann­inum þó ekki refs­ingu. Maðurinn var ann­ars vegar ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni, með því að hafa 18. des­em­ber 2013 skammt frá skóla einum á Norð­ur­landi, tekið í hönd stúlku sem þá var 14 ára og látið hana fróa sér uns hann hafði sáð­lát og hins vegar fyrir að hafa ári síðar sýnt annarri 14 ára stúlku kyn­ferð­is­lega áreitni í gegnum facebook, þar sem hann tal­aði fyrir því að þau tvö myndu hitt­ast, honum til eigin fró­unar og munn­maka.

Samkvæmt rann­sókn­ar­gögnum komu stúlk­urnar tvær á lög­reglu­stöð ásamt for­eldrum sínum, þann 22. jan­úar 2014, og báru fram kæru á hendur ákærða fyrir kyn­ferð­is­brot. Í erind­inu var til þess vísað að ákærði, sem væri skóla­bróðir þeirra, en árinu eldri, hefði um nokk­urra vikna skeið stöðugt haft sam­skipti við þær og þá jafnan við­haft kyn­ferð­is­lega orð­ræðu og til­burði.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár