Skipuleggja mótmæli við heimili Bjarna Benediktssonar

Hópurinn Beinar aðgerðir ætlar að mót­mæla við heim­ili ráð­herr­anna. Fyrstur í röð­inni er Bjarni Bene­dikts­son. „Þetta er of langt gengið,“ segir gagn­rýn­andi mót­mæl­anna.

Skipuleggja mótmæli við heimili Bjarna Benediktssonar
Mót­mæla­mynd Mót­mæl­enda­hóp­ur­inn Beinar aðgerðir ætlar að mót­mæla við heim­ili ráð­herra. Mynd: Beinar aðgerðir

Hópur sem hefur mót­mælt rík­is­stjórn­inni ætlar að taka mót­mælin skref­inu lengra og halda mót­mæli við heim­ili ráð­herra, ef kröfur þeirra verða ekki sam­þykktar. 

Í yfir­lýs­ingu hóps­ins kemur fram að Bjarni Bene­dikts­son sé fyrstur.

„Ef rík­is­stjórn Sigurðar Inga hefur ekki aðhafst fyrir 1. maí þá hitt­umst við, kæru lands­menn, stund­vís­lega við heim­ili Bjarna klukkan 19:00 þann 1. maí.“ 

Hópurinn krefst þess að mynduð verði utan­þings­stjórn og að rík­is­stjórnin segi af sér. Kosn­ingar verði ekki síðar en 10. sept­em­ber.

Eftir mót­mæli í kjöl­far birt­ingu upp­lýs­inga úr Panama-skjöl­unum, þar sem leyndir hags­munir for­sæt­is­ráð­herra urðu ljósir, var því lýst yfir að stefnt væri að kosn­ingum næsta haust. 

Ekki víst hvenær kosningar verða

Bjarni Bendikts­son var spurður hvenær haldnar yrðu kosn­ingar í sjón­varps­fréttum RÚV, eftir fund með stjórn­ar­and­stöð­unni í gær. „Já, við svona með öllum fyr­ir­vörum um eðli­legan fram­gang þing­starf­anna þá vorum við að ræða um það að síð­ari hluti októ­ber gæti verið ágæt­lega ákjós­an­legur tími.“

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist 34% í síð­ustu Gallup-könnun sem birt var fyrir tíu dögum, en hún skil­yrðir boðun kosn­inga við að mála­skrá hennar nái fram að ganga með eðli­legum hætti.

Skipu­leggj­endur mót­mæl­anna taka fram að þau verði frið­sam­leg. „Hópurinn hvetur alla lands­menn til að mæta í grillið með einnota grill, mat, tjald­stóla, trommur og góða skapið. Einnig er gott að æfa radd­böndin aðeins og slag­orð til þess að syngja. Í kjöl­farið verða heim­ili ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar þrædd, eitt heim­ili á kvöldi. Látum þá ekki sitja eina að grilli og gróða á kostnað okkar hinna!“ 

Atburðurinn gagnrýndur

Mótmælin hafa verið gagn­rýnd, en mót­mæl­end­urnir rök­styðja röskun á heim­ili ráð­herra með því að flokkar við­kom­andi ráð­herra hafi vegið að frið­helgi heim­ila lands­manna.

„Í sam­an­burði við þá árás sem íslensk heim­ili máttu þola í hrun­inu mega rök um frið­helgi heim­ilis for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins sín lít­ils, það var nú einu sinni hans flokkur sem tók þátt í árásinni á heim­ili lands­ins.“

Margir hafa skrifað skila­boð til skipu­leggj­enda á Facebook-síðu atburð­ar­ins. Meðal þeirra eru Vil­hjálmur Þor­steins­son, fjár­festir og einn eig­enda Kjarnans. „Ég mun ekki mæta þarna. Þetta er of langt gengið og ekki mál­staðnum til fram­dráttar,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár