Sigmundur Davíð: Í óefni komið þegar þingmaður tjáir sig um „hvort annar þingmaður hafi farið á salernið“

Jón Gunn­ars­son segir stein­inn taka úr þegar Birgitta Jóns­dóttir „bloggar“ um per­sónu­leg sam­töl hans við Ásmun Einar.

Sigmundur Davíð: Í óefni komið þegar þingmaður tjáir sig um „hvort annar þingmaður hafi farið á salernið“

Uppsala Ásmundar Einars var til umræða á Alþingi rétt í þessu þegar rætt var um fund­ar­stjórn. Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Jón Gunn­ars­son tóku til máls og gagn­rýndu Birgittu Jóns­dóttur fyrir að ræða við fjöl­miðla, nánar til­tekið Vísi, vegna meintra veik­inda Ásmundar Einars.

„Hér eru menn auk þess farnir að brjóta ýmsar og flestar umgengn­is­venjur sem tíðkast hafa hér á þing­inu, svo ekki sé minnst á almenna kurt­eisi. Getur virðu­legur for­seti haft stjórn á fundi. Það má öllum vera ljóst í hvers konar óefni er komið þegar þing­maður er far­inn að tjá sig við fjöl­miðla um það hversu oft eða hvort annar þing­maður hafi farið á sal­ernið á ferða­lagi. Þegar þessi stað er komin upp á þingi og í umræðum við fjöl­miðla þá má öllum vera ljóst hvers konar óásæt­an­leg nið­ur­staða er orðin í þessum leik­ara­skap,“ sagði Sig­mundur Davíð á þingi.

Því næst tók Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til máls og tók hann undir með for­sæt­is­ráð­herra. Birgitta sagði í sam­tali við Vísi í gær að Ásmundur hafi verið með bestu heilsu og hafi verið að grín­ast með sessu­naut sínum Jóni Gunn­ars­syni.„Virðu­legur for­seti, það er fullt til­efni til að hafa orð á því hér hvernig þing­menn eru farnir að blogga hér per­sónu­lega. Það tekur stein­inn úr þegar hátt­virtur þing­maður, Birgitta Jóns­dóttir, er hér á bloggi að fjalla um per­sónu­leg sam­töl mín og ann­ars þing­manns, sem eru sessu­nautar hennar í þing­sal. Þetta er ítrekað og hefur áður gerst í vetur, að hún setur inn á Facebook per­sónu­legar upp­lýs­ingar per­sónu­leg sam­töl okkar. Þetta er algjör nýlunda hér í þessu,“ sagði Jón. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár