Mótmæli hafin: Sigmundur Davíð biður þingmenn að gæta að heiðri þjóðarinnar og Alþingis

Þingmenn kalla á eftir afsögn for­sæt­is­ráð­herra og segja hann skaða hags­muni Íslands.

Mótmæli hafin: Sigmundur Davíð biður þingmenn að gæta að heiðri þjóðarinnar og Alþingis
Sig­mundur Davíð á þingi rétt í þessu Sig­mundur sat undir háværum og ítrek­uðum áskor­unum um afsögn. Mót­mæl­endur safn­ast fyrir utan Alþing­is­húsið á sama tíma. Mynd: Kristinn Magnússon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hlýddi á ákafar áskor­anir þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar um að hann segði af sér á Alþingi fyrir skemmstu. Þegar óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum lauk yfir­gaf for­sæt­is­ráð­herra þing­sal, en búið er að taka önnur mál af dag­skrá þings­ins.

Sig­mundur steig í pontu og svar­aði því til, eins og hann gerði í við­tali við Stöð 2 fyrr í dag, að hann myndi ekki segja af sér. Hann bað þing­menn um að gæta að fram­göngu sinni í umræð­unum á Alþingi um aðkomu hans að félagi í skatta­skjóli og við­tal við sænskan rann­sókn­ar­blaða­mann, sem sýnt var í Kast­ljós­inu, þar sem Sig­mundur gekk út eftir að hafa verið stað­inn að ósann­indum. 

„Þegar heiður þjóð­ar­innar og þess­arar stofn­unar sem Alþingi er, er í húfi, þá hljótum við öll að reyna að gæta að fram­göngu okkar,“ sagði Sig­mundur. 

Hann sagði „alrangt“ að félag hans og eig­in­konu hans, sem skráð er í skatta­skjól­inu Tortóla, hafi verið í skatta­skjóli, þar sem greiddir hefðu verið skattar af félag­inu. Hann sagði ýmis lönd hafa verið nefnd skatta­skjól, þar á meðal Svíþjóð.

Hér má sjá beint streymi af mót­mæl­unum á Aust­ur­velli:

Kallað á afsögn

Mikill hiti er í þing­mönnum minni­hlut­ans á Alþingi í dag en þeir hófu þing­fund í dag á því að kalla á eftir afsögn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Þeir segja Sigmund Davíð hafa skaðað orð­spor og hags­muni Íslands og að hver mín­úta sem hann situr í emb­ætti sé „pín­leg“. „Trú­verð­ug­leiki þjóð­ar­innar er undir,“ sagði Katrín Júl­í­us­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar rétt í þessu.

Birgitta Jóns­dóttir þing­maður Pírata sagði það von­brigði að Sig­mundur Davíð hefði ekki þegar lýst því yfir að hann hyggð­ist segja af sér. Hún sagði Sigmund Davíð sýna þing­inu, fólk­inu sem kaus hann, flokknum sínum, blaða­mönnum og hags­munum þjóð­ar­innar slíka van­virðu að ekki verði við það unað lengur að hann sitji lengur á ráð­herra­stóli. Alþingi geti ekki starfað áfram eins ekk­ert sé á meðan Sig­mundur Davíð situr í sal Alþingis. „Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, segðu af þér!,“ kall­aði hún að for­sæt­is­ráð­herra úr ræðu­stóli rétt í þessu. 

Óttar Proppé, for­maður Bjartar fram­tíðar, sagði Íslend­inga stadda í grafal­var­legi þjóð­ar­kreppu. „Leynd­ar­yggja hefur grafið um sig hjá hæstu ráða­mönnum þjóð­ar­innar.“ 

Sigmundur á þingi
Sig­mundur á þingi For­sæt­is­ráð­herra bað um að þing­menn gættu að heiðri Alþingis.

Undra sig á þögn meirihlutans

Þingmenn minni­hlut­ans lýstu einnig yfir undrun yfir því að þing­menn meiri­hlut­ans hefðu ekki tjáð sig um málið. „Er það í alvöru yfir­veguð afstaða stjórn­ar­meiri­hlut­ans að þetta sé í lagi? Ætlið þið ekki að standa með þjóð­inni?“ spurði Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Róbert Marshall lagði áherslu á að van­traust­s­til­laga yrði borin upp svo fljótt sem verða má, svo hægt sé að fá skýr­ingu á þeirri „þrúg­andi þögn“ sem stafar af þing­mönnum meiri­hlut­ans um þessa stöðu. 

„Ætla þing­menn að verja þessa hegðun og þetta ástand? Ætlum við að láta þetta við­gang­ast? Í alvör­unni?“ spurði Helgi Hrafn Gunn­ars­son. 

Nokkrir þing­menn sögðu Sigmund Davíð skaða hags­muni Ísland með áfram­hald­andi setu. Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­maður Bjartar fram­tíðar, sagði hverja mín­útu sem liði án þess að hann segi af sér pín­lega. „Embættið er ekki hans. Ráð­herra­stóll­inn er ekki hans,“ sagði hún. 

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, bað þing­menn að hug­leiða aðstöðumun­inn þegar Ísland er borið saman við Frakk­land. Forseti Frakk­lands, Francois Hollande, hafi fagnað gagna­lek­anum, hrósað rann­sókn­ar­blaða­mönn­unum fyrir umfjöllun sína og sagst vona að upp­lýs­ingar verði nýttar í bar­átt­unni gegn skatta­skjólum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár