Sigmundur ásakar blaðamenn: Tekjulágir fá samt minnst

For­sæt­is­ráð­herra segir skulda­nið­ur­fell­ingar leiða til „tekju­jöfn­unar“ og sakar blaða­menn Frétta­blaðs­ins um að vera full­trúa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Tekju­lægstu 20 pró­sentin fá aðeins 13 pró­sent af því skattfé sem varið er í aðgerð­irnar. Tekju­hæstu 20 pró­sentin fá hins vegar 29 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni.

Sigmundur ásakar blaðamenn: Tekjulágir fá samt minnst

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra full­yrðir að skulda­nið­ur­fell­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar leiði til tekju­jöfn­unar. Þetta kemur fram í pistli sem birt­ist í Frétta­blaðið í dag um skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána. Segir Sig­mundur að skýrslan sýni svart á hvítu hversu vel hafi tak­ist til við leið­rétt­ing­una. 

Þá heldur hann því fram að full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna „hvort heldur þeir tjá sig á þingi eða á leið­ar­a­síðu Frétta­blaðs­ins“ eigi erfitt með að sætta sig við vel­heppn­aða leið­rétt­ingu. Tveir „hinna her­skárri“ hafi skrifað um málið á síð­unni í gær, en þar beinir for­sæt­is­ráð­herra spjótum sínum að Kolbeini Ótt­ars­syni Proppé og Snærós Sindra­dóttur, blaða­mönnum á Frétta­blað­inu. Bæði Kolbeinn og Snærós tóku þátt í stjórn­mála­starfi Vinstri grænna á árum áður, en hvor­ugt þeirra er lengur virkt í stjórn­mála­starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár