Sex góðir eiginleikar Guðna sem forseta

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur nú setið í emb­ætti for­seta Íslands í sex mán­uði. Orð hans og athafnir móta sam­fé­lagið og þau við­horf sem þar ríkja og í því ljósi er for­vitni­legt að sjá hvernig langstærstur hluti lands­manna fylk­ist að baki honum. Ánægja með störf for­set­ans hefur aldrei mælst meiri, að minnsta kosti ekki frá því að MMR hóf mæl­ingar árið 2011. Eitthvað er hann að gera rétt. En hvað?

Sex góðir eiginleikar Guðna sem forseta
For­set­inn Frá því að Guðni Th. Jóhann­es­son tók emb­ætti hefur hann meðal ann­ars sýnt með skýrum hætti að hann tekur afstöðu með mann­rétt­indum og gegn þjóð­rembu. Mynd: Heiða Helgadóttir

1. Hann tekur stöðu með flóttamönnum og hafnar þjóðrembu

Þegar kvótaflótta­menn­irnir frá Sýrlandi komu til lands­ins á dög­unum bauð Guðni þeim beint í heim­sókn á Bessa­staði. Hann heils­aði öllum með brosi og hlýju. Móttakan var tákn­ræn og með henni tók for­set­inn skýra afstöðu gegn þeim sem vilja taka við sem fæstum flótta­mönnum og líta á komu þeirra sem vanda­mál. Í ræðu sinni á þjóð­rækni­þingi nýverið hafn­aði Guðni þjóð­rembu og minnti á að hún væri vara­samt og hættu­legt leið­ar­ljós í sam­skiptum þjóða. „Þjóð­rækni, rækt­ar­semi við þjóð­ina, á að vera mótuð af víð­sýni og umburð­ar­lyndi og þá er hún alltaf af hinu góða. Andstæða þjóð­rækni er þjóð­remban, sem felur í sér sjálfs­upp­hafn­ingu, hroka í garð ann­arra, það að telja suma í fjöl­skyldu þjóð­anna betri en aðra,“ sagði hann meðal ann­ars.

2. Hann tekur afstöðu með mannréttindum

Guðna eru mann­rétt­indi ofar­lega í huga. Þegar Donald …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár