Sérsveitarmenn kallaðir út vegna friðsamlegra mótmæla

Mikill við­bún­aður var fyrir utan rúss­neska sendi­ráðið þegar fjórir mót­mæl­endur stóðu þar fyrir framan til að vekja athygli á slæmri með­ferð sam­kyn­hneigðra í Téténíu. Lög­reglu­þjónn ýtti mót­mæl­endum yfir göt­una og segir annar þeirra að lög­reglan hafi hótað þeim hand­töku.

Sérsveitarmenn kallaðir út vegna friðsamlegra mótmæla
Mótmæli Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir mót­mælir slæmri með­ferð sam­kyn­hneigðra í Téténíu.

Lög­reglan hót­aði að hand­taka konu sem mót­mælti frið­sam­lega fyrir utan rúss­neska sendi­ráðið á Garða­stræti fyrr í dag. Boðað var til mót­mæl­anna til að vekja athygli á slæmri með­ferð sam­kyn­hneigðra í Téténíu, útskýrir María Helga Guð­munds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna 78. „Í gær og í dag, milli klukkan tólf og fimm, eru við með stöðu­mót­mæli þar sem við skipt­umst á að standa fyrir framan sendi­ráðið, nokkur í einu. Okkur finnst afar dap­ur­legt að við fáum ekki að standa hérna og ræða málin,“ segir María Helga.

Mótmæla
Mótmæla Slæmri með­ferð sam­kyn­hneigðra í Téténíu.

Þegar blaða­maður kom á svæðið voru lög­reglu­menn fleiri en mót­mæl­endur. María Helga segir að þrír til fjórir lög­reglu­bílar hafi verið á svæð­inu og á tíma­bili hafi hún talið átta lög­reglu­þjóna, þar á meðal lög­reglu­menn frá sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra. Mót­mæl­endur voru fjórir.

„Þetta er í raun bara ofbeldi, að ýta mér í burtu og hóta mér hand­töku.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár