Segja „neyðarástand“ ríkja á Íslandi vegna komu hælisleitenda

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins leggja til laga­breyt­ingu sem miðar að því að færri brott­vís­unum hæl­is­leit­enda verði frestað.

Segja „neyðarástand“ ríkja á Íslandi vegna komu hælisleitenda

Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar hefur lagt fram frum­varp til breyt­inga á útlend­inga­lögum um að girt verði fyrir, í til­teknum til­vikum, að kæra útlend­ings á ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun úr landi geti orðið til þess að rétt­ar­á­hrifum ákvörð­un­ar­innar verði frestað. 

Breyt­ingin mun, sam­kvæmt frum­varpstext­anum, taka til til­vika „sem falla undir d-lið 1. mgr. 32. gr.“ útlend­inga­laga. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir:

Í frum­varp­inu er kveðið á um að til 1. jan­úar 2017 muni kæra í til­teknum málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, þar sem Útlend­inga­stofnun hefur ákveðið að við­kom­andi skuli yfir­gefa landið, ekki fresta rétt­ar­á­hrifum þeirrar ákvörð­unar. Tekur ákvæðið til þeirra mála þar sem umsækj­andi kemur frá ríki á lista yfir örugg upp­runa­ríki, sbr. 3. mgr. 50. gr. d, og Útlend­inga­stofnun metur umsókn­ina að öðru leyti ber­sýni­lega til­hæfu­lausa.

Auk þess er fjallað um til­gang frum­varps­ins:

Til­gangur ákvæð­is­ins er að létta því mikla álagi sem verið hefur á mót­töku- og búsetu­úrræðum fyrir hæl­is­leit­endur með því að stytta dval­ar­tíma í þeim málum þar sem lægra stjórn­sýslu­stig hefur metið umsókn­ina ber­sýni­lega til­hæfu­lausa og umsækj­andi kemur frá ríki á lista yfir örugg upp­runa­ríki. Ef fram fer sem horfir stefnir í að um 1000 manns sæki um hæli hér á landi á árinu og má því segja að ákveðið neyð­ar­á­stand ríki í þessum málum. Gera má ráð fyrir að kostn­aður á fjár­laga­lið hæl­is­leit­enda á þessu ári verði um 1,7 millj­arðar kr. Af þeim umsóknum sem borist hafa er um helm­ingur frá ríkjum á lista yfir örugg upp­runa­ríki. Því er ljóst að kostn­aður vegna umsókna frá þessum ríkjum er veru­legur.

Fram kemur að með frum­varp­inu sé „lagt til að umsækj­andi fari úr landi svo fljótt sem verða má eftir að nið­ur­staða liggur fyrir á fyrsta stjórn­sýslu­stigi“. Um leið er full­yrt að með þessu sé „hvorki slegið af kröfum til rétt­látrar máls­með­ferðar á fyrsta stjórn­sýslu­stigi né rétti umsækj­anda til að kæra ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar“. 

Stundin greindi frá því í byrjun mars að Píratar væru eini flokk­ur­inn á Alþingi sem hefði ekki viljað taka þátt í flutn­ingi frum­varps frá meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um til­teknar breyt­ingar á útlend­inga­lögum. Þar var meðal ann­ars lagt til að stjórn­völd gætu sent hæl­is­leit­endur sem koma frá „öruggum upp­runa­ríkjum“ úr landi um leið og Útlend­inga­stofnun hefði úrskurðað í málum þeirra auk þess sem hæl­is­leit­endur yrðu sviptir rétt­inum til að koma fram fyrir kæru­nefnd útlend­inga­mála. 

Í sam­tali við Stundina sagð­ist Helgi Hrafn telja ómál­efna­legt af stjórn­völdum að styðj­ast við lista yfir örugg ríki. „Það er sér­stak­lega var­huga­vert að menn ætli nú að gefa þeim lista aukið vægi, þar sem hann getur ein­ungis haft þau einu áhrif að mál eru ekki skoðuð jafn vel og þau ber að skoða,“ sagði hann og bætti við: „Ég tel líka frá­leitt að setja í lög að rétt­ar­á­hrifum verði ekki frestað. Það á alltaf að vera mögu­legt að fresta rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar.“ 

Frum­varpið var sam­þykkt, með smá­vægi­legum breyt­ingum, af þing­mönnum úr öllum flokkum nema Pírötum fimmtu­dag­inn 12. maí. Nú hafa þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd lagt fram annað frum­varp sem gengur lengra í sömu átt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár