Segir ummæli sín mistúlkuð: Var einungis að vísa til „háfleygra orða“ umhverfisráðherra

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­kona og stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, telur að snúið hafi verið út úr orðum sínum. Hún segir umhverf­is­ráð­herra hafa gert þau „hræði­legu mis­tök“ að rugla saman „til­mælum“ og „leið­sögn“ sem séu „háfleyg orð“.

Segir ummæli sín mistúlkuð: Var einungis að vísa til „háfleygra orða“ umhverfisráðherra

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, stjórn­ar­maður í Bjartri fram­tíð og fyrrum vara­þing­kona og stjórn­ar­for­maður flokks­ins, telur að Stundin hafi mistúlkað ummæli sín um „háfleyg orð“ á Alþingi í frétt sem birt­ist á vefnum í gær. 

Fram kom í umræddri frétt að Bryn­hildi þætti umræðan um rangar upp­lýs­ingar sem Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra gaf Alþingi þann 9. febr­úar vera stormur í vatns­glasi. Var meðal ann­ars vitnað í eft­ir­far­andi ummæli sem Bryn­hildur lét falla á Facebook: „Þetta er mesta 'much ado about not­hing' sem ég hef séð lengi. Póteitó-pótató. Hver skilur eða pælir í þessum fárán­lega háfleygu orðum á þingi? And who really cares?“ 

Bryn­hildur bregst við frétta­flutn­ingnum í dag og seg­ist ekki hafa verið að vísa almennt til umræðna á Alþingi eða hátíð­legra orða sem þar eru látin falla heldur ein­vörð­ungu til þess að ráð­herra hefði notað orðið „til­mæli“ en í raun og veru verið að vísa til „leið­sagnar“ sem nefnd um veit­ingu íviln­ana til nýfjár­fest­inga hefði fengið. 

Bryn­hildur segir að sumt þyki sér miður að lesa í grein Stund­ar­innar.„T.a.m. að túlka svar mitt (sem var á FB þræði btw) þannig að "fólk skilji ekki né pæli í því sem SAGT ER á þingi". Það er í besta falli rang­túlkun. Versta falli er það lygi. Svo við notum bara sömu stóru orð og ég brást illa við að umhverfis- og auð­linda­ráð­herra væri sökuð um. Ég sagði orð­rétt "hver skilur eða pælir í þeim HÁFLEYGU ORÐUM sem notuð eru á þingi" í sam­hengi við svar Björt Ólafs­dóttir [sic] um að í hennar huga séu orðin "til­mæli" og "leið­sögn" nátengd. Að henni hafi orðið á þau "hræði­legu" mis­tök að rugla þessum tvennum hug­tökum saman,“ skrifar hún.

Tekið skal fram að Bryn­hildur vitnar ekki rétt í sjálfa sig, því í gær sagði hún orð­rétt: „Hver skilur eða pælir í þessum fárán­lega háfleygu orðum á þingi?“ Þá er rétt að geta þess að hvorki fjöl­miðlar né þing­menn hafa notað orðið „lygi“ um þær röngu upp­lýs­ingar sem umhverf­is­ráð­herra gaf Alþingi.

Bryn­hildur hafnar því að hún sé áhrifa­kona í Bjartri fram­tíð og seg­ist ein­vörð­ungu vera hluti af bak­landi flokks­ins. Þar séu allir jafn miklir áhrifa­menn og áhrifa­konur. Hún segir að það skipti sig mestu máli hvort það sé stefna rík­is­stjórn­ar­innar að stöðva íviln­anir til meng­andi stór­iðju, ekki hvort stefn­unni sé fram­fylgt með til­mælum eða leið­sögn til nefndar um veit­ingu íviln­ana. 

„Mér finnst þetta "much ado about not­hing". Og að kalla þetta lygi ráð­herra - finnst mér magnað. Ekki síst af þing­manni Vinstri grænna - sem ég hefði haldið að myndi stórfagna því að fá umhverf­is­ráð­herra sem "means business" í að stöðva íviln­anir til stór­iðju og takast á við lofts­lags­málin. Nema þetta sé prógrammeruð við­brögð við því þegar ein­hver gerir eitt­hvað gott - sem til­heyrir ekki hans eig­ins flokki. Og það er lame. Sama hvaða orð maður notar. Annars bara hrezz!“ skrifar Bryn­hildur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár