Segir ummæli lögreglustjórans ekki svaraverð: „Nauðganir eru næsti bær við morð“

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, sagði í gær að engin alvar­leg lík­ams­árás hefði verið framin á þjóð­há­tíð, þrátt fyrir að lög­reglan hafi tvö kyn­ferð­is­brota­mál til rann­sóknar. Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, segir það ekki traust­vekj­andi þegar lög­reglu­stjóri talar með þessum hætti.

Segir ummæli lögreglustjórans ekki svaraverð: „Nauðganir eru næsti bær við morð“

Þrjár konur hafa leitað til neyð­ar­mót­töku vegna nauð­gana eftir þjóð­há­tíð í Vest­mann­eyjum um helg­ina. Þrátt fyrir það sagði Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi að þar hefði eng­inn orðið fyrir alvar­legu lík­ams­tjóni.

Aðspurð um frétta­til­kynn­ingu frá lög­regl­unni þar sem sagði að hátíðin hefði farið vel fram og á hverju það mat byggir, svar­aði Páley: „Það að hátíðin hafi farið vel fram tekur yfir hátíð­ina í það heila. Hér eru fimmtán þús­und manns. Hér varð eng­inn fyrir alvar­legu lík­ams­tjóni. Við vorum ekki með nein höf­uð­kúpu­brot eða slíkar stór­kost­lega alvar­legar lík­ams­árásir. Vopnamál voru engin og hér var til­tölu­lega mik­ill friður yfir fólkið.

Vissu­lega komu upp þessi tvö kyn­ferð­is­brota­mál. Ég ætla ekki að gera lítið úr því. Það er grafal­var­legt og alvar­legar afleið­ingar sem þau valda en engu að síður í svona stórum hópi fólks var til­tölu­lega mik­ill friður yfir fólki og hátíðin fór, miðað við fyrri hátíðir, nokkuð vel fram þrátt fyrir þessi ömur­legu kyn­ferð­is­brot."

Alvarlegar afleiðingar nauðgana  

Kyn­ferð­is­brot eru á meðal alvar­leg­ustu brota sem hægt er að fremja sam­kvæmt íslenskum hegn­ing­ar­lögum, og við þeim varðar allt að sextán ára fang­elsi. Í árs­skýrslu Stíga­móta er ítar­leg útlistun á afleið­ingum kyn­ferð­is­brota. Þar segir að þolendum nauð­gana gangi mis­vel að kom­ast yfir afleið­ingar ofbeld­is­ins og ná aftur fullri stjórn á lífi sínu. Þeir sem þangað leita lýsi líðan sinni á meðan nauðg­un­inni stendur oft við það að vera í ein­angr­andi tómi, þar sem til­finn­ingin um ein­manna­leika er sterk­ust. Að til­finn­ingin sé eins og að missa alla stjórn á lífi sínu og aðstæðum. Því fylgi mik­ill ótti og ásækin til­finn­ing um að vera í lífs­hættu. „Þær velja þá leið til að lifa árás­ina af, lík­am­lega og til­finn­inga­lega, sem aðstæður og mat þeirra á þeim leyfir.“

Þá segir að afleið­ing­arnar séu marg­vís­legar og mis­mun­andi hjá hverjum og einum. Algengt sé að þolendur fái lík­am­leg áfallsein­kenni eins og martraðir, höf­uð­verki, ýmis­konar verki, kláða, upp­köst, skjálfta og önnur áfallsein­kenni. Þá glími þeir við ýmis vanda­mál er varða and­lega heilsu þeirra, brotna sjálfs­mynd, skömm og sekt­ar­kennd. „Nauðgun hefur svo djúp­stæð áhrif á til­finn­inga­líf kvenna og sjálfs­mynd þeirra, að þeim tekst sjaldn­ast að gleyma henni án þess að til­finn­inga­leg úrvinnsla eigi sér stað,“ segir í árs­skýrslu Stíga­móta.

„Helstu eft­ir­köst nauð­gana sem konur glíma við eru brotin eða skert sjálfs­mynd, sekt­ar­kennd, erf­ið­leikar í kyn­lífi og þung­lyndi. Flestum konum sem er nauðgað finnst að nauðg­unin spilli þeim, þær séu ann­ars flokks, „skemmd vara“ eftir nauðg­un­ina. Sjálfs­mat þeirra og sjálfs­mynd riðl­ast og traust þeirra á körlum bíður oft var­an­lega hnekki.“

Efast um hæfi lögreglustjórans
Efast um hæfi lög­reglu­stjór­ans Guðrún Jóns­dóttir segir að ákvörðun lög­reglu­stjór­ans sé fyrst og fremst í hag þeirra sem vilja halda ímynd þjóð­há­tíðar góðri og þeirra sem nauðga, ekki þolenda. Hún segir jafn­framt að ummæli lög­reglu­stjór­ans í gær sýni ekki mik­inn skiln­ing á alvar­leika nauð­gana.

Nauðganir næsti bær við morð

Það er því ljóst að nauðg­anir eru alvar­legar lík­ams­árásir sem geta haft mikil áhrif á líf og heilsu þeirra sem fyrir þeim verða. Orð lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum sem sagði „hér varð eng­inn fyrir alvar­legu lík­ams­tjóni,“ eru því ekki svara­verð að mati Guðrúnar Jóns­dóttur, tals­konu Stíga­móta.

„Maður hefur oft heyrt þetta áður,“ segir Guðrún. „Þetta er gam­all söngur, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár