Spenna á landsfundi: Kenningum um leynimakk vísað á bug

„Ég skil ekki hvernig það getur verið ein­hver aðför úr laun­sátri að umdeildur for­maður fái mót­fram­boð,” segir lands­fund­ar­full­trúi í sam­tali við Stundina. Sigríður Ingi­björg sögð hafa ákveðið sig í gær.

Spenna á landsfundi: Kenningum um leynimakk vísað á bug

„Ég held að flestir fagni því nú bara að sitj­andi for­maður fái mót­fram­boð. Ef Árni Páll vinnur þá stendur hann uppi sem sterk­ari for­maður en áður, en ef ekki þá er það bara til marks um að fólk vilji breyt­ingar,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar um for­manns­kjör Sam­fylk­ing­ar­innar sem fram fer á eftir. Stundin hefur rætt við Sam­fylk­ing­ar­fólk um stöðu mála og and­rúms­loftið á lands­fund­inum.

Mjög hefur verið þrýst á for­ystu­breyt­ingar und­an­farnar vikur og mán­uði og þá helst litið til Katrínar Júl­í­us­dóttur og Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur.

Þegar Sigríður til­kynnti um fram­boð sitt í gær­kvöldi kom það flokks­mönnum í opna skjöldu, meðal ann­ars Árna Páli, eins og hann sagði sjálfur í sjón­varps­fréttum RÚV, og stuðn­ings­mönnum hans. 

Á Eyjunni og í Kjarn­anum í dag er gefið í skyn að lengi hafi staðið yfir skipu­lagn­ing hall­ar­bylt­ingar innan Sam­fylk­ing­ar­innar. Vef­pressan gengur svo langt að tala um „her­ráð Sigríðar Ingi­bjargar“ og nefnir meðal ann­ars Kjartan Val­garðs­son, fyrr­ver­andi for­mann Reykja­vík­ur­fé­lags Sam­fylk­ing­ar­innar og for­mann full­trúa­ráðs, í þessu sam­hengi. Kemur nafn hans einnig fyrir í umfjöllun Kjarnans.

Stundin sló á þráð­inn til Kjartans og spurði hvort fótur væri fyrir þessum kenn­ingum. „Ég er mjög upp með mér eftir að hafa lesið þetta, en hlutur minn er þó stór­lega ýktur,“ segir hann og bætir við: „Þegar ég tal­aði við Siggu í gær þá var hún ekki búin að ákveða sig.“ Kjartan seg­ist þá hafa hvatt Sigríði til að bjóða sig fram.

Aðrir stuðn­ings­menn og félagar Sigríðar Ingi­bjargar, sem Stundin hefur rætt við, þræta einnig fyrir að hafa vitað af fram­boði hennar fyr­ir­fram. „Ég spurði hana fyrir nokkrum vikum hvort hún gæti hugsað sér í fram­boð og þá var hún á báðum áttum,“ segir einn við­mæl­andi. 

Annar bendir á að margir hafi lengi viljað sjá breyt­ingar, það sé ekk­ert laun­ung­ar­mál, en að það hafi algjör­lega farið fram hjá sér ef stór­kost­legt plott hafi verið skipu­lagt með löngum fyr­ir­vara til að steypa Árna Páli af stóli. „Ég skil ekki hvernig það getur verið ein­hver aðför úr laun­sátri að umdeildur for­maður fái mót­fram­boð,“ segir lands­fund­ar­full­trú­inn í sam­tali við blaða­mann.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar ætla margir í Ungum jafn­að­ar­mönnum, sem áður studdu Árna Pál til for­ystu í Sam­fylk­ing­unni, að kjósa Sigríði Ingi­björgu. Hefur Stundin heim­ildir fyrir því að margir ung­liðar hafi íhugað að skila auðu ef Árni Páll yrði einn í fram­boði. 

„Árni Páll er með sterkt bak­land í flokknum, en ég held að margir ótt­ist að flokk­ur­inn muni ekki ná flugi með hann í for­ystu. Það er dálítil áhætta fólgin í því að kjósa Sigríði, en ég held að það sé áhætta sem margir eru til­búnir að taka,” segir einn við­mæl­and­inn. 

Annar telur að Árni Páll hafi staðið sig vel á erf­iðum tímum, en það taki tíma að byggja upp trú­verð­ug­leika flokks­ins. Ekki megi gera óraun­sæjar kröfur til for­manns í þeim efnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár