Salka Sól vill ekki skylda flugfreyjur til að vera í hælaskóm

Spurði WOW air og Icelandair út í hæla­skó á Twitter. „Það er eitt­hvað brenglað við þetta,“ segir söng­konan.

Salka Sól vill ekki skylda flugfreyjur til að vera í hælaskóm

Salka Sól Eyfeld, söng­kona og dag­skrár­gerða­kona, vakti á dög­unum athygli á því að flug­freyjur eru almennt skyldugar til þess að vera í hæla­skóm. Hún not­aði sam­skipta­vef­inn Twitter til þess að spyrja íslensku flug­fé­lögin WOW air og Icelandair hvers vegna þessar reglur væru enn við lýði og merkti umræð­una #6dags­leik­inn, en myllu­merkið hefur verið notað að und­an­förnu til þess að vekja athygli á hvers­dags­legu kynja­mis­rétti. 

Salka seg­ist hafa verið hugsi yfir þessum reglum í kjöl­far umræð­unnar sem varð í kringum kvik­mynda­há­tíð­ina í Cannes, þegar konum var mein­aður aðgangur að rauða dregl­inum fyrir að vera ekki í hæla­skóm. „Þarna var kona sem þurfti að láta fjar­lægja hluta af öðrum fæti og gat þar af leið­andi ekki verið í hæla­skóm. Henni var vísað frá,“ segir Salka. Hún bendir einnig á að flug­freyjur eru ekki eina starf­stéttin sem er skyldug til þess að vera í hæla­skóm. Starfs­konur flug­vall­ar­ins þurfi einnig að vera á háum hælum, oft langar vaktir. „Ég fór líka að velta fyrir mér hver það væri sem setur þessar reglur. Eru það konur sem setja þessar reglur eða eru það karlar? Og getur maður ekki verið fínn þó svo að maður sé ekki í hælum? Það er eitt­hvað brenglað við þetta.“

Partur af uniforminu

Salka seg­ist í kjöl­farið hafa rætt við flug­freyjur og kom­ist að því að afar stífar reglur gilda um útlit þeirra. Ekki er nóg með að þær þurfi að vera á háum hælum heldur þarf and­lits­máln­ingin til dæmis að vera með ákveðnum hætti. „Það sem hæla­skór gera er að þeir ýta rass­inum út og brjóst­unum upp. Maður verður nær því að líta út eins og karlar vilja hafa konur,“ segir Salka sem tekur það fram að hún hafi ekk­ert á móti hælum. „Mér finnst allt í lagi að konur gangi í hælum. Mér finnst bara að þær eigi að fá að hafa val um það sjálfar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu