Sænska rannsóknarnefndin rannsakar plastbarkamálið á Íslandi í næsta mánuði

Sænsk rann­sókn­ar­nefnd kemur til Íslands í næsta mán­uði. Kjell Asplund sem leiðir rann­sókn­ina á plast­barka­mál­inu segir að rætt verði við þá aðila sem komu að með­ferð Andemari­ams Beyene. Rann­sóknir sænskra aðila á plast­barka­mál­inu teygja sig til Íslands með beinum hætti en plast­bark­að­gerðir Paulo Macchiarinis geta leitt af sér ákærur í Svíþjóð, meðal ann­ars fyrir mann­dráp.

Sænska rannsóknarnefndin rannsakar plastbarkamálið á Íslandi í næsta mánuði
Ræða við aðila máls­ins á Íslandi Kjell Asplund mun koma til Íslands í næsta mán­uði og ræða við þá aðila sem komu að fyrstu plast­barka­að­gerð­inni á Íslandi. Mynd: Anna Molander

Sænska rann­sókn­ar­nefndin sem rann­sakar Macchiarini-málið fyrir Karol­inska-sjúkra­húsið í Stokk­hólmi kemur til Íslands í apríl til að kort­leggja íslenskar hliðar máls­ins. Þetta segir lækn­ir­inn Kjell Asplund sem leiðir rann­sókn máls­ins fyrir sænsku rann­sókn­ar­nefnd­ina. Rannsókn Kjell Asplunds er óháð í þeim skiln­ingi að Karol­inska-sjúkra­húsið leit­aði til hans sem utan­að­kom­andi aðila og sér hann svo um að ráða til sín aðra rann­sak­endur.  Þannig munu starf sænsku rann­sókn­ar­nefndar teygja sig til Íslands með beinum hætti og segir Asplund að á Íslandi muni rann­sókn­ar­nefnd­inn ræða við þá ein­stak­linga sem „tengj­ast mál­inu“ án þess að hann vilji nefna ein­hver nöfn í því sam­bandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár