Rekstrarkostnaður Plain Vanilla rúmir tveir milljarðar á tveimur árum

Íslenski tölvu­leikja­fram­leið­and­inn Plain Vanilla er enn ekki byrj­aður að skila tekjum að ráði en Þor­steinn Frið­riks­son fram­kvæmda­stjóri segir að vonir standi til þess. Fyr­ir­tækið er nær alfarið fjár­magnað af banda­rískum fjár­festum. Um 100 manns starfa nú hjá fyr­ir­tæk­inu en voru tólf á árum áður.

Tekjurnar upp í rekstrarkostnað
Tekj­urnar upp í rekstr­ar­kostnað Rekstur tölvu­leikja­fram­leið­and­ans Plain Vanilla er dýr og en fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins að kostn­að­ur­inn sé vel á annað hund­rað millj­ónir króna á mán­uði um þessar mundir.

Rekstr­ar­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins Plain Vanilla, eig­anda spurn­inga­leikj­ar­ins QuizUp, nemur rúm­lega tveimur millj­örðum króna á síð­ast­liðnum tveimur árum. Í fyrra voru rekstr­ar­tekj­urnar 845 millj­ónir króna en voru 222 millj­ónir króna árið þar áður. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið í fyrra en í fyrra komu nær allar tekjur fyr­ir­tæk­is­ins, rúm­lega 873 millj­ónir króna, frá hlut­höfum fyr­ir­tæk­is­ins erlendis.

Fyr­ir­tækið er ekki byrjað að skila miklum tekjum að sögn Þor­steins B. Frið­riks­sonar, fram­kvæmda­stjóra Plain Vanilla. „Við erum búnir að vera að keyra mjög dýran rekstur og stórt fyr­ir­tæki í dágóðan tíma og við höfum ekki verið að taka inn miklar tekjur. Tekjur er eitt­hvað sem við þurfum að horfa á og það lítur alveg ótrú­lega vel út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár