Ragnheiður Elín mætir loksins fyrir nefnd

Nefnd­ar­maður segir ráð­herra hafa farið undan í flæm­ingi á fund­inum. Mögulega verður ramma­lög­gjöf­inni breytt vegna samn­ings­ins við Matorku.

Ragnheiður Elín mætir loksins fyrir nefnd
Fór undan í flæm­ingi Björt Ólafs­dóttir segir Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­að­ar­ráð­herra, hafa farið undan í flæm­ingi á fundi atvinnu­vega­nefndar í morgun.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra mætti fyrir atvinnu­vega­nefnd í morgun eftir að hafa í þrí­gang beðist undan því. Þar skýrði hún afstöðu sín hvað varðar mjög umdeildan fjár­fest­ing­ar­samn­ing við fisk­eld­is­fé­lagið Matorku. Fjár­fest­ing­ar­samn­ing­ur­inn hefur verið gagn­rýndur harð­lega meðal ann­ars fyrir að skekkja sam­keppni í fisk­eldi á bleikju. Full­trúar frá fyr­ir­tæk­inu Matorku mættu einnig á fund­inn. „Ég set ekk­ert út á fyr­ir­tækið, heldur set ég út á fyr­ir­komu­lagið sem við erum að bjóða upp á,“ segir Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar í atvinnu­vega­nefnd. „Það sem er athygl­is­verð­ast, og ekki í lagi finnst mér, er að ráð­herra er að grípa inn í markað sem er blóm­legur nú þegar. Markað sem á eru fullt af fyr­ir­tækjum sem hafa þegar þurft að byggja sig upp á mark­aðs­legum for­sendum. Þau hafa ekki fengið neinar íviln­anir. Svo kemur eitt fyr­ir­tæki sem fær það allt í einu, út af því að þeim datt í hug að sækja um. Það er eitt­hvað rangt við það.“ 

Aðspurð hvort ráð­herra hafi útskýrt mál sitt á fundi atvinnu­vega­nefndar í morgun segir Björt hann hafa farið undan í flæm­ingi. „Ég skil ekki hvernig ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ef hann ætlar að aðhyll­ast stefnu þeirra um frjálst mark­aðs­hag­kerfi og mátt sam­keppn­innar, getur staðið fyrir þessu. Ég næ því ekki,“ segir Björt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár