Vísað á einkarekna læknisþjónustu

Spænskum manni, sem búsettur er hér á landi, var tvisvar á stuttu tíma­bili ráð­lagt að leita til einka­rek­innar lækna­stöðvar, frekar en að fá með­ferð við sjúk­dómi sínum á Land­spít­al­anum.

Af Landspítalanum
Af Land­spít­al­anum Mikið álag hefur verið á Land­spít­al­anum að und­an­förnu. Mynd: Kristinn Magnússon

Spænskum manni, sem leit­aði á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í byrjun síð­ustu viku vegna blæð­ingar, var tjáð að hann ætti ekki að leita þangað.

Frá þessu greinir El Faro de Reykja­vík, sem er frétta­mið­ill á spænsku sem fjallar um íslensk mál­efni. Maðurinn, sem vildi ekki koma fram undir nafni, lýsti því að honum hafi verið bent á að leita til sér­fræð­ings vegna meina sinna. Þar sem sér­fræð­ing­ur­inn taki ekki á móti bráða­til­fellum og það geti tekið nokkrar vikur að fá hjá honum tíma hafi mað­ur­inn neitað frá að hverfa og kraf­ist þess að láta lækni á bráða­mót­tök­unni skoða sig.

Að lokum komst hann að. Tekin var hjá honum blóðprufa sem leiddi í ljós að hann þurfti á frek­ari aðstoð læknis að halda. Var honum þá tjáð að hann þyrfti að leita til sér­fræð­ings á einka­rek­inni stofu, þar sem „það væri van­inn á Íslandi“. Þremur vikum fyrr hafði hann fengið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár