Vissi ekki hvað gígavattstundir voru og gerði ýmsar „vitleysur“

„En það var bara minn stíll,“ segir Val­gerður Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra í nýút­kominni bók. Hún rétt­lætir spjöllin á Lag­ar­fljóti og seg­ist ekki sjá eftir neinu

Vissi ekki hvað gígavattstundir voru og gerði ýmsar „vitleysur“
Fyrr­ver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra Val­gerður seg­ist ekki hafa vitað hvað gíga­vatt­stundir væru þegar hún tók við emb­ætti.

„Ákvörðun stjórn­valda var rétt. Þótt þarna fari ákveð­inn hluti af hálendi Íslands undir vatn er fram­kvæmdin umhverf­is­væn.“ Þetta segir Siv Frið­leifs­dóttir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, um virkj­un­ar­fram­kvæmdir við Kára­hnjúka í við­tals­bók­inni Frú ráð­herra eftir Eddu Jóns­dóttur og Sigrúnu Stef­áns­dóttur. Í bók­inni, sem kemur út í til­efni 100 ára afmælis kosn­inga­réttar kvenna, er rætt við tutt­ugu kon­ur sem hafa setið á ráð­herra­stóli. Siv Frið­leifs­dóttir og Val­gerður Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, nota tæki­færið meðal ann­ars til að rétt­læta ákvarð­anir sem þær tóku vegna Kára­hnjúka­virkj­unar, svo sem að fella úr gildi úrskurð Skipu­lags­stofn­unar sem hafði lagst gegn fram­kvæmd­unum vegna umhverf­is­á­hrifa og ófull­nægj­andi upp­lýs­inga um ein­staka þætti aðgerð­anna.

Ákvörðunin rétt
Ákvörð­unin rétt Siv sér ekki eftir því að hafa hnekkt úrskurði Skipu­lags­stofn­unar um Kára­hnjúka.

Þegar Val­gerður tók við iðn­aðar­ráðu­neyt­inu virð­ist hún ekki hafa vitað mikið um mála­flokk­inn. „Ég sagði líka við sjálfa mig: Guð minn góður, þarf ég þá að fara að tala um gíga­vatt­stundir, sem ég vissi ekki einu sinni hvað var.“ Hún seg­ist hafa verið „fljót að taka ákvarð­anir“ og bætir við: „Stundum ef til vill of fljót og gerði þannig vit­leysur. En það var bara minn

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár