Plain Vanilla: Eftirsóttasti vinnustaður landsins logar í deilum

Starfs­fólk Plain Vanilla íhugar stöðu sína eftir að til­von­andi trún­að­ar­manni var sagt upp störfum viku fyrir kosn­ingar. Heim­ildir herma að sumir starfs­menn séu að leita sér að nýrri vinnu. Samkvæmt bréfi til­von­andi trún­að­ar­manns eru starfs­menn hræddir við rekstr­ar­stjóra.

Plain Vanilla: Eftirsóttasti vinnustaður landsins logar í deilum

Mikil ólga er nú meðal starfs­manna Plain Vanilla, fram­leið­anda spurn­inga­leiks­ins QuizUp. Þrátt fyrir að tæp­lega hund­rað manns vinni hjá fyr­ir­tæk­inu, sem hefur vaxið ört síð­ustu miss­eri, er þar eng­inn starf­andi trún­að­ar­maður. Í stað trún­að­ar­manns hangir tafla upp á vegg á skrif­stof­unni, þar sem ætl­ast er til að starfs­menn komi athuga­semdum á fram­færi, sem ann­ars færu til trún­að­ar­manns.

Starfs­menn hafa ekki verið sáttir við þetta fyr­ir­komu­lag. Hefur verið vax­andi þrýst­ingur innan félags­ins að kos­inn sé trún­að­ar­maður innan þess, eins og kveðið er á um í lögum og kjara­samn­ingum. Sá starfs­maður sem hvað harð­ast hafði gengið fram í þeirri kröfu, og var kom­inn með nægan stuðn­ing til þess að hljóta kjör, var svo rek­inn, viku áður en kosn­ingin fór fram. Hann sendi bréf til Þor­steins Frið­riks­sonar, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem hann útlistar vanda­mál félags­ins.

Reglu­lega birt­ast fréttir þar sem Plain Vanilla er málað sem einn eft­ir­sótt­asti vinnu­staður á land­inu. Vísir birti í fyrra frétt þar sem greint var frá því að kokkur frá Argent­ínu eld­aði hádeg­is­mat, Nútíminn birti mat­seð­il­inn og Við­skipta­blaðið greindi frá því að starfs­menn fengju vörur frá Apple.

Stundin náði tali af Þor­steini Frið­riks­syni, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, þar hann var staddur í San Francisco um miðja nótt á stað­ar­tíma. Hann sagði fyrst að hann kann­að­ist ekk­ert við ólgu á meðal starfs­manna en þegar bréf trún­að­ar­manns­ins var borið undir hann kaus hann að tjá sig ekki um málið. Ekki náð­ist í Gunnar Hólm­stein Guð­munds­son, rekstr­ar­stjóra félags­ins, við vinnslu fréttar.

Uppfært kl. 16:20: Starfs­mað­ur­inn sem var rek­inn á dög­unum hafði sam­band við Stundina og vildi að það kæmi skýrt fram að hann hafi ekki afhent Stund­inni tölvu­póst sinn til Þor­steins. Stundin hafði sam­band við mann­inn við vinnslu fréttar og vildi hann þá ekki tjá sig opin­ber­lega um málið. 

Tússtafla í stað trúnaðarmanns

Umræddur fyrr­ver­andi starfs­maður sendi Þor­steini Frið­riks­syni, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, langt bréf í kjöl­far brott­rekst­urs­ins. Í bréf­inu, sem Stundin hefur undir höndum, kemur fram að und­an­farið hafi starfs­manna­mál félags­ins verið í lama­sessi. Líkt og hefur komið fram er eng­inn trún­að­ar­maður en í stað hans kemur tús­stafla í almennu rými þar sem starfs­menn eiga að skrifa niður áhyggjur sínar. Samkvæmt bréfi til­von­andi trún­að­ar­manns var spurt á töfl­unni hvers vegna eng­inn trún­að­ar­maður væri á vinnu­staðnum. Þeirri spurn­ingu á Gunnar Hólm­steinn Guð­munds­son, rekstr­ar­stjóri félags­ins, að hafa svarað á þann veg að slíkt væri ónauð­syn­legt þar sem allir væru dug­legir að ræða málin á per­sónu­legum og til­finn­inga­legum nótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár