Píratar vilja að upplýsingar úr fyrirtækjaskrá verði ókeypis

Vilja gera upp­lýs­ingar fyr­ir­tækja­skrár aðgengi­legri almenn­ingi og lögðu fram frum­varp á Alþingi í dag.

Píratar vilja að upplýsingar úr fyrirtækjaskrá verði ókeypis

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frum­varp sem miðar að því að gera upp­lýs­ingar fyr­ir­tækja­skrár aðgengi­legri almenn­ingi. Lagt er til að gjald­töku fyrir raf­ræna upp­flett­ingu í skránni verði hætt.

„Lagt er til að ekki skuli taka gjald fyrir raf­ræna upp­flett­ingu í fyr­ir­tækja­skrá og að sömu upp­lýs­ingar skuli vera aðgengi­legar þar og ef greitt væri fyrir ein­tak af gögnum úr skránni. Til dæmis er nú aðeins hægt að fá upp­lýs­ingar um stjórn og árs­reikn­inga félaga með því að greiða fyrir þær og telja verður að þær séu því ekki aðgengi­legar almenn­ingi,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins sem lagt var fram á Alþingi í dag.

Hér má sjá frum­varpið í heild en flutn­ings­menn eru þing­menn Pírata, þau Björn Leví Gunn­ars­son, Ásta Guðrún Helga­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Einar Brynj­ólfs­son, Gunnar I. Guð­munds­son, Halldóra Mogensen, Jón Þór Ólafsson, Smári McCarthy, Viktor Orri Val­garðs­son, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár