Pálmi tekur 290 milljóna arð til aflandsfélags í Lúxemborg

Ferða­skrif­stofa Pálma Har­alds­sonar hefur hagn­ast um vel á annað hund­rað millj­ónir króna tvö ár í ár. Eina fyr­ir­tækið sem Pálmi heldur eftir á Íslandi. Tekjur nema nærri 3 millj­örðum króna.

Pálmi tekur 290 milljóna arð til aflandsfélags í Lúxemborg
Arður ár eftir ár Pálmi Har­alds­son tekur nú arð út úr ferða­skrif­stofu sinni ár eftir ár en hann missti flest fyr­ir­tækja sinna eftir hrunið 2008.

Pálmi Har­alds­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi eig­andi Fons, greiddi 120 millj­óna króna arð út úr fyr­ir­tæki sínu Ferða­skrif­stofu Íslands í fyrra og ætlar að bæta við 170 millj­ónum króna á þessu ári. Arðurinn rennur til móð­ur­fé­lags Ferða­skrif­stofu Íslands í Lúx­em­borg sem heitir Academy S.A.R.L. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Ferða­skrif­stofu Íslands. Það fyr­ir­tæki rekur ferða­skrif­stof­urnar Sum­ar­ferðir, Úrval Útsýn og Plús­ferðir, Hekla Travel A/S í Danmörku, Hekla Travel AB og Hekla Resor AB í Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur

Einkarekið lækningafyrirtæki selt fyrir 850 milljónir eftir 585 milljóna arðgreiðslur til hluthafa
FréttirArðgreiðslur

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki selt fyrir 850 millj­ónir eftir 585 millj­óna arð­greiðslur til hlut­hafa

Bæði heil­brigð­is­ráð­herra og for­stjóri Sjúkra­trygg­inga eru mót­fallnar arð­greiðslum úr einka­reknum lækn­inga­fyr­ir­tækjum. Eigendur Lækn­is­fræði­legrar mynd­grein­ingar þurfa að taka minnst 100 millj­ónir á ári út úr rekstr­inum til að geta staðið í skilum eftir að hafa keypt fyr­ir­tækið á 850 millj­ónir króna. Sex læknar hafa fengið 180 millj­ónir króna á mann í arð og sölu­hagnað.
Ráðherra mótfallin arðgreiðslum úr heilbrigðisfyrirtækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim
FréttirArðgreiðslur

Ráðherra mót­fallin arð­greiðslum úr heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim

Nýr for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands hefur störf með látum og lýsir yfir and­stöðu við arð­greiðslur úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum. Heil­brigð­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, er sam­mála því mati en hyggst ekki beita sér í mál­inu og bendir á að það sé ekki á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.
Þetta er fólkið sem fær hluta af milljarðaarðinum frá Sjóvá og VÍS
FréttirArðgreiðslur

Þetta er fólkið sem fær hluta af millj­arðaarð­inum frá Sjóvá og VÍS

Stærstu hlut­hafar Sjóvár og VÍS eru líf­eyr­is­sjóðir, bankar og fjár­fest­inga­sjóðir en einnig ein­stak­lingar og eign­ar­halds­fé­lög. Fyr­ir­tækin tvö greiða út sam­tals átta millj­arða króna arð. Síld­ar­vinnslan, for­stjóri B&L, Árni Hauksson og Friðrik Hall­björn Karlsson, Steinunn Jóns­dóttir og óþekkt félag eru meðal þeirra sem fá arð­inn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár