Öryggisvörður stunginn með blóðugri sprautunál í matvöruverslun

Kona sem talin er á fer­tugs­aldri réðst á örygg­is­vörð í versl­un­inni 10-11 við Bar­óns­stíg rétt fyrir klukkan átta í morgun. Örygg­is­vörð­ur­inn var að vísa kon­unni út úr versl­un­inni þegar hún dró upp sprautu­nál og stakk starfs­mann­inn sem leit­aði sér aðstoðar á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans.

Öryggisvörður stunginn með blóðugri sprautunál í matvöruverslun
Þjálfaðir örygg­is­verðir Sér­stak­lega þjálfaðir örygg­is­verðir sinna nú störfum í fjöl­mörgum mat­vöru­versl­unum hér á landi sem eru með opn­un­ar­tíma allan sól­ar­hring­inn.

Örygg­is­vörður frá fyr­ir­tæk­inu 115 Security þurfti að gang­ast undir blóð­rann­sóknir í morgun eftir að hafa  verið stung­inn með blóð­ugri sprautu­nál í fram­hand­legg­inn í verslun 10-11 við Bar­óns­stíg nú rétt fyrir klukkan átta í morgun.

Samkvæmt vitni sem Stundin ræddi við gekk inn kona, að því er virt­ist á fer­tugs­aldri, inn í verslun 10-11 í morgun en hún var sögð í mjög ann­ar­legu ástandi.

Hættulegra starfsumhverfi en áður

Örygg­is­vörð­ur­inn er sagður hafa gengið upp að kon­unni og beðið hana kurt­eis­is­lega að yfir­gefa versl­un­ina. Konan brást ekki vel við þessum til­mælum og dró upp sprautu og stakk örygg­is­vörð­inn. Sá hélt áfram að sinna starfi sínu og kom umræddri konu út fyrir versl­un­ina áður en hann var leystur af og hélt rak­leiðis upp á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár