„Fékk endalaus bros til baka“

Hún er tveggja barna móðir og eig­in­kona í Vest­ur­bænum. Hún er líka múslimi, upp­alin í Danmörku en með tyrk­neskar rætur. Derya Kevioglu Oezdilek er for­maður Horizon, menn­ing­ar­fé­lags múslima á Íslandi, og leggur áherslu á hvernig kristni og íslam geta dafnað saman. Hún hefur upp­lifað for­vitni, en ekki for­dóma, og fær bros sín end­ur­goldin. Fjöl­skyldan er í afar góðu sam­bandi við for­eldra leigu­sala hennar og kallar sonur Deryu þau „afa og ömmu“.

„Fékk endalaus bros til baka“
Brosir til fólks Derya brosir til for­vit­ins fólks og fær bros til baka. Mynd: Kristinn Magnússon

„Ég hef aldrei orðið fyrir for­dómum út af því ég er múslimi. Sumir eru samt for­vitnir því það er ekki algengt hér á Íslandi að konur gangi með slæðu,“ segir Derya Kevioglu Oezdilek, 28 ára dönsk kona sem flutti til Íslands með fjöl­skyldu sinni fyrir hálfu þriðja ári. „Ég get sagt þér eina skemmti­lega sögu,“ segir hún og brosir: „Ég var einu sinni að versla í Nettó úti á Granda þegar ég tók eftir því að eldri hjón virt­ust vera að elta mig. Þau fylgd­ust gaum­gæfi­lega með því þegar ég setti tómata ofan í körf­una mína og þegar ég setti mjólk í körf­una. Þau voru ekk­ert að versla sjálf heldur héldu sig alltaf nálægt mér, án þess þó að segja neitt. Allt í einu kemur síðan starfs­maður Nettó til mín, ung kona, og fer að tala um hvað henni þyki slæðan mín fal­leg. Hún tal­aði við mig á íslensku og ég svar­aði henni á íslensku. Gömlu hjónin létu sig þá hverfa. Þau hafa séð að ég er bara venju­leg kona sem borðar tómata, drekkur mjólk og talar íslensku, þó ég þurfi auð­vitað að æfa mig miklu meira,“ segir hún. Derya brosir enn sínu blíð­asta og ég sann­fær­ist fljótt um að brosmildi er eitt af því sem ein­kennir hana. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár